Tiger Woods handtekinn

Tiger Woods handtekinn

Tiger Woods, einn sigursælasti kylfingur allra tíma, var handtekinn í dag grunaður um akstur undir áhrifum. Kylfingurinn var handtekinn eftir að hann klessti á aðra bifreið með þeim afleiðingum að hans eigin bíll, svartur Range Rover, valt á hliðina. Slysið átti sér stað í Jupiter Island í Flórída en þar er Woods búsettur.John Budensiek, sýslumaður í Martin-héraði, segir Woods hafa litið út fyrir að vera undir áhrifum á vettvangi. Kylfingurinn blés í öndurmæli á slysstað en neitaði hins vegar að gefa þvagsýni.Þegar við báðum hann um þvagsýni neitaði hann því og var þess vegna ákærður fyrir ölvunarakstur, eignaspjöll og að neita að taka lögmætt próf vegna slyssins,“ sagði Budensiek. Woods var þó heimilt að neita að veita þvagsýni, en það er löglegt í Flórída.Sýslumaðurinn sagði sérfræðinga hafa metið svo að Woods virtist vera undir áhrifum áfengis eða einhvers konar lyfja eftir slysið. Lög um akstur undir áhrifum í Flórída kveða á um að Woods verði haldið í varðhaldi í að minnsta kosti 8 klukkustundir.Hvorki Tiger Woods né ökumaður hins bílsins slösuðust í slysinu.Þetta er lítill tveggja akreina vegur. Hefði einhver verið á ferðinni í öfuga átt þá hefðu ökumenn ekki sloppið óslasaðir,“ sagði Budensiek og gaf til kynna að Woods hefði verið á langtum meiri hraða en leyfilegur var á veginum sem er 30 mílur á klukkustund. Enn á eftir að greina hraðann sem Woods var á.Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Woods er handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum, en það var hann einnig árið 2017.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left