„Því miður varð okkur fótaskortur“
World

„Því miður varð okkur fótaskortur“

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Sérfræðingur Vegagerðarinnar segir fyrirhugaðar framkvæmdir í Hvalfjarðargöngum umfangsmiklar og tímabærar. Hann harmar stuttan fyrirvara af hálfu Vegagerðarinnar en kveðst hafa átt góðar samræður við fyrirtæki og stofnanir sem vilji leysa málin í sameiningu.Frá og með deginum í dag og næstu sjö vikur verður Hvalfjarðargöngum lokað frá hálf tíu á kvöldin til sex á morgnana, frá sunnudegi til föstudags.Lokunin er vegna endurnýjunar á lýsingu í göngunum.

„Því miður varð okkur fótaskortur“

Valgarður Guðmundsson, sérfræðingur Vegagerðarinnar á suðursvæði, segir stórt verkefni fram undan.Við þurfum að skipta út bæði öllum lömpum til lýsingar, eins erum við að skipta um alla kapla og eins er verið að rífa niður gamlan búnað sem hefur svolítið dagað uppi þarna hjá okkur upp á síðkastið. Gömul myndavélakerfi sem dæmi og önnur gömul lýsing sem þarf að taka niður og farga.“Hafa átt góðar viðræður við fyrirtæki og stofnanirVegagerðin hefur verið gagnrýnd fyrir skamman fyrirvara tilkynningarinnar. Valgarður sýnir þeirri gagnrýni skilning en er bjartsýnn á að hægt verði að finna lausn við þeim vandamálum sem komi upp vegna lokunarinnar.Við bara göngumst við því, því miður varð okkur fótaskortur á tungunni og upplýsingagjöf,“ segir Valgarður.Við hörmum það og okkur þykir það leitt en við höfum núna um páskahelgina og í dag átt mjög góðar viðræður við bæði fyrirtæki og stofnanir norðan við göng sem hjálpa okkur og leggjast á eitt við að leysa málin.“Inntur eftir því hvort hann telji mögulegt að klára verkið á sjö vikum kveðst Valgarður ekki geta svarað þeirri spurningu.Nú verð ég að vera mjög pólitískur og segja að það muni tíminn leiða í ljós.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More