Þrjú þúsund eldingar mældust í gær
April 7, 2026
RÚV
Miklar rafmagnstruflanir urðu þegar eldingu laust niður í Búrfellslínu 1 á Suðurlandi í gær. Rafmagn fór af Mosfellsbæ að hluta, víða á Suðurlandi, allt frá Landeyjum að Vík í Mýrdal, og einnig í Vestmannaeyjum og Borgarfirði eystri. Þá fór rafmagn af Keflavíkurflugvelli og Alþingishúsinu en í báðum tilvikum fóru varaaflstöðvar í gang.Þórður Arason jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að margar eldingar hafi mælst.Þetta var mest sunnan við Reykjanesskagann og aðeins hérna á höfuðborgarsvæðinu.
Yfir landinu voru þetta um 850 eldingar sem er bara mjög mikið. Yfir hafinu fyrir sunnan Ísland voru enn fleiri. Ég held að í öllu veðrinu hafi þetta verið um þrjú þúsund eldingar,“ segir Þórður.Þrumuveður hafa verið sjaldgæf á Íslandi og Þórður segir erfitt að meta hvort það sé að breytast.Það eru að jafnaði tveir þrumudagar á ári í Reykjavík en það getur sveiflast. Stundum bara einn og stundum fjórir. Þannig að það þarf ekki að vera neitt sérstakt við það. Við sjáum svo sem ekki neina langtímaleitni í þessu en af því þetta eru svo fáir atburðir þá er voða erfitt að segja eitthvað um það,“ segir Þórður.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.