0
Þrjár kynslóðir listakvenna sýna í Hveragerði
April 18, 2026
Posted 1 hour ago by
Þrjár kynslóðir sýna nú verk sín á Bókasafni Hveragerðis á sýningu, sem heitir Mæður – Ljósmæður“ en þar eru meðal annars myndir af höndum ljósmæðra og ungbörnum. Um fjögur þúsund börn fæðast hér á landi árlega en fæðingartíðni fer þó lækkandi.Það eru þrjár kynslóðir, sem eru með verk á sýningunni, en það er hún Ingibjörg, sem myndskreytti Brjóstagjafabókina sem kom út hjá Bókafélaginu fyrir um ári en á sýningunni má sjá upprunalegu myndskreytingarnar úr bókinni í nýjum búningi.
Svo er það Hulda Sigurlína, sem er ljósmóðir, brjóstagjafaráðgjafi, áhugaljósmyndari og einn af höfundum Brjóstagjafabókarinnar. Hulda Lína sýnir ljósmyndir af höndum ljósmæðra á sýningunni og loks er það Ronja Vignisdóttir, sem er nemandi við Grunnskólann í Hveragerði, sem á nokkur verk með mömmu sinni og ömmu á sýningunni. Hún vinnur með blandaða tækni á vatnslitapappír og fjallar í verkum sínum um tengsl mæðra og afkvæma.Þrjár kynslóðir listakvenna sýna á Bókasafni Hveragerðis undir yfirskriftinni Mæður – Ljósmæður“. Þar eru meðal annars myndir af höndum ljósmæðra og ungbörnum.En hvernig er að vera með mömmu og ömmu á sömu sýningunni?Það er bara geggjað, já. Ég er frekar að vatnsmála frekar en að gera einhverjar myndir,” segir Ronja.Og Hulda Sigurlína bætir við.Og við erum líka að vekja athygli á hvað þetta er mikilvægt að við sýnum hvert öðru umhyggju í gegnum ljósmæðrastarfið og mæðrunina.”Þetta er svolítið blandað, Lína er með myndir af ljósmæðrum handa og Ronja er með myndir af afkvæmum dýra og svo er ég með upprunnanlegu myndirnar úr bókinni, sem við erum að sýna,” segir Ingibjörg.Eruð þið ekki stoltar af þessu verkefni? Jú, jú”, segja þær allar í kór.Formaður Ljósmæðrafélags Íslands mætti að sjálfsögðu við opnun sýningarinnar í gær, 8. apríl.Það er það og gaman að flétta svona saman kynslóðum listamanna eins og á þessari sýningu,” segir Unnur Berglind Friðriksdóttir.En hvað eru ljósmæður landsins að taka á móti mörgum börnum á ári?Þetta sveiflast svolítið, því miður þá fer börnum fækkandi, fæðingatíðni fer lækkandi en það er svona um fjögur þúsund börn”, segir Unnur.Sýningin, sem er í verslunarmiðstöðinni Sunnumörk verður opin til 8. maí á opnunartíma bókasafnsins.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.