Þrír menn grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur
0
World

Þrír menn grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur

April 20, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Þrír karlmenn á þrítugs- og fertugsaldri voru handteknir á föstudagskvöld grunaðir um að hafa dregið fjórtán ára stúlkur á tálar. Þær voru farþegar í bíl með mönnunum.Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir að lögreglan hafi stöðvað bílinn í almennu umferðareftirliti í Hlíðunum í Reykjavík á föstudagskvöld. Í bílnum voru þrír menn á aldrinum 24-34 ára og tvær fjórtán ára stúlkur.

Þrír menn grunaðir um að hafa táldregið fjórtán ára stúlkur

Þær voru undir áhrifum. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru mennirnir af erlendum uppruna, en Ævar Pálmi vildi ekki tjá sig um þjóðerni mannanna.Lögreglan stöðvaði bílinn af tilviljun. Engin ábending hafði borist og stúlknanna var ekki leitað. Ævar Pálmi segir að samsetning hópsins, tímasetningin og ástand stúlknanna hafi verið með þeim hætti að lögreglu þótti vert að rannsaka frekar. Óvenjulegt sé að menn á þessum aldri séu á rúntinum með fjórtán ára stúlkum sem þeir þekki ekki og lögreglu beri skylda til að rannsaka hvort eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Mennirnir voru handteknir en sleppt úr haldi að loknum skýrslutökum og grunnrannsókn. Ekki þótti tilefni til að fara fram á gæsluvarðhald.Mennirnir eru grunaðir um brot á þriðju málsgrein 99. greinar barnaverndarlaga, sem snýr að því að sýna barni yfirgang, ruddalegt eða ósiðlegt athæfi, særa það eða móðga. Brotin varða allt að tveggja ára fangelsi. Ævar Pálmi segir rannsókn lögreglu meðal annars snúa að því hvort stúlkunum hafi verið byrlað.Samkvæmt heimildum fréttastofu eru engin tengsl á milli mannanna og stúlknanna. Samskipti þeirra á milli benda til þess að mennirnir hafi tælt stúlkurnar á samfélagsmiðlum. Til álita kemur að mennirnir hafi átt í samskiptum við aðrar stúlkur á þessum aldri.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More