Þrír menn ákærðir fyrir að hafa kveikt í sjúkrabílum sjálfboðaliðasamtaka
April 4, 2026
RÚV
Þrír ungir karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa kveikt í fjórum sjúkrabílum á vegum gyðinglegu Hatzola-sjálfboðaliðasamtakanna í Golders Green-hverfinu í Lundúnum 23. mars. Þeir þykja einnig hafa sýnt kæruleysi gagnvart lífi annars fólks, að því er segir í tilkynningu Lundúnalögreglunnar. Mennirnir koma fyrir rétt í Westminster í dag, laugardaginn 4.
apríl. Þeir voru handteknir á þremur mismunandi stöðum í borginni á miðvikudag. Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, lítt þekkt samtök íslamista með möguleg tengsl við Íran, hafa lýst ábyrgð á verknaðinum.Þau hafa sagst standa að baki svipaðra árása í Belgíu og Hollandi auk þess sem frönsk hryðjuverkalögregla telur þau hafa skipulagt sprengjutilræði gegn útibúi Bank of America í París, sem kæft var í fæðingu. Hert hefur verið á öryggisgæslu við samkomustaði gyðinga í Lundúnum eftir atlöguna að sjúkrabílunum í Golders Green. Tveir mannanna hafa verið nafngreindir sem Hamza Iqbal og Rehan Khan en sá þriðji er undir lögaldri og því hefur ekki verið greint frá nafni hans. Hann hefur bæði breskt og pakistanskt ríkisfang en hinir tveir eru breskir ríkisborgarar. Þrír hettuklæddir menn helltu eldfimum vökva yfir sjúkrabílana og báru eld að. Engan sakaði líkamlega. Málið er rannsakað sem hatursglæpur í garð gyðinga og hefur vakið hörð viðbrögð í Bretlandi.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.