Þrír í fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl
World

Þrír í fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl

April 9, 2026
RÚV
Scroll

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá menn til fimm ára fangelsisvistar í síðasta mánuði. Þeir reyndu að smygla níu lítrum af kókaínbasa til landsins. Efnið földu þeir í tveimur rauðvínskössum sem voru í Peugeot-bíl sem einn þeirra ferðaðist með í Norrænu.Upp komst um smyglið þegar Norræna kom í land á Seyðisfirði í nóvember. Lögregla skipti fíkniefnunum út fyrir gerviefni.

Þrír í fimm ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl

Hún fylgdist með ferðum bílstjórans, Ali Aoudia, og sá hann afhenda Higor De Souza Bernardo efnin skammt frá hóteli við Brautarholt í Reykjavík þremur dögum eftir komuna til Íslands. Skömmu síðar kom Marco Antonio Raizer Marafon og sótti De Souza Bernardo. Þeir voru handteknir skömmu síðar með gerviefnin.Mennirnir kröfðust allir sýknu en til vara vægustu refsingar.Einn þeirra kom á bíl sem hafði ekki verið með skráðan eiganda síðan 2021 samkvæmt Evrópsku ökutækjaskránni. Sá sagðist hafa fengið vínið að gjöf og hafa verið beðinn um að afhenda það manni á Íslandi.Hinir komu frá Ítalíu en flugu í gegnum Malaga og Barcelona á Spáni. Annar sagðist ekki hafa vitað af fíkniefnunum. Hinn kvaðst hafa grunað að þetta gætu verið fíkniefni, helst MDMA, en að hann hefði ekki tekið þátt hefði hann vitað af kókaíninu.Lögreglan fylgdist með ferðum mannanna og samskiptum þeirra. Einn smyglaranna var í samskiptum á Signal við tvo óþekkta menn sem gengu undir dulnefnunum Albert Einstein og Mad Drugs.Dómari sagði ljóst að mennirnir væru hluti af skipulagðri og lagskiptri brotastarfsemi og hefðu staðið í fíkniefnainnflutningi ásamt fleiri mönnum. Þeim hafi öllum verið ljóst, eða mátt vera ljóst, að þeir væru þátttakendur í innflutningi ólöglegra fíkniefna til landsins. Dómarinn gerði ekki upp á milli hlutverka mannanna heldur mat þá alla sem aðalmenn í smyglinu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More