Þriggja daga opinber heimsókn Sanchez til Kína hefst í dag
0
World

Þriggja daga opinber heimsókn Sanchez til Kína hefst í dag

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, fer í þriggja daga opinbera heimsókn til Kína í dag. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja tengslin við annað stærsta hagkerfi heims. Stjórnvöld á Spáni vilja tryggja meiri viðskipti við Kína, sérstaklega með landbúnaðar- og iðnaðarvörur. Þá er einnig áhugi á því að kanna sameiginleg verkefni í tæknigeiranum.Þetta er fjórða heimsókn Sanchez til Kína á jafnmörgum árum.

Þriggja daga opinber heimsókn Sanchez til Kína hefst í dag

Leiðtogar Bretlands, Kanada og Þýskalands hafa einnig heimsótt Kína nýverið og Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur boðað komu sína til Kína í maí.Samskipti Spánar og Bandaríkjanna hafa verið stirð undanfarið eftir að Trump hótaði því í síðasta mánuði að hætta viðskiptum við Spán eftir að spænsk stjórnvöld neituðu Bandaríkjamönnum um að nota herstöðvar á Spáni til að gera árásir á Íran.Spánn álitið gátt inn á stærri markaðiKínverjar eru sagðir hafa áhuga á að auka viðskipti við Spánverja. Claudio Feijoo, sérfræðingur í málefnum Kína við Tækniháskólann í Madrid, segir að Kína álíti Spán eins konar vinaþjóð sem sé átakafælnari en mörg önnur lönd og ekki háð stjórnvöldum í Bandaríkjunum. Það einfaldi sjálfstæðar ákvarðanir milli þjóðanna.Spánn er álitið gátt til Evrópu, Suður-Ameríku og Norður-Afríku. Landið getur verið eins konar miðstöð þaðan sem hægt er að komast inn á fleiri markaði á sama tíma,“ segir Feijoo.Spænskar landbúnaðarvörur eiga mikla möguleika í Kína enda er Spánn stór matvælaframleiðandi. Kína getur ekki annað eftirspurn eftir öllum þeim matvælum sem það þarf, allavega ekki af sömu gæðum og gerðar eru kröfur um af þjóðinni,“ segir Feijoo.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More