Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni
0
World

Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni

April 22, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

60 prósent eru andvíg þéttingu byggðar í nærumhverfi sínu en 22 prósent eru henni andvíg. Þetta eru niðurstöður viðhorfskönnunar fyrir Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Afstaðan er mjög breytileg eftir aldursflokkum og öðrum þáttum.Fólk á aldrinum 25 til 34 ára er líklegast til að vera hlynnt þéttingu, 36 á þeim aldri segjast mjög eða frekar hlynnt henni.

Þrefalt fleiri á móti þéttingu en hlynntir henni

Fleiri í þeim aldursflokki eru þó andvíg þéttingu, 47.Af íbúum einstakra sveitarfélaga eru Mosfellingar andvígastir þéttingu byggðar, 84 eru á móti henni en tvö prósent fylgjandi. Fjórðungur Reykvíkinga og Garðbæinga er fylgjandi þéttingu en tæplega þrír af hverjum fimm andvígir.Mikill munur er á afstöðu fólks eftir hverfum. 52 íbúa í miðbæ og gamla Vesturbæ Reykjavíkur eru hlynnt þéttingu en 34 andvíg. Mest er andstaðan við þéttingu byggðar í efra Breiðholti í Reykjavík, 86 .Fólk sem býr í litlu húsnæði er líklegra til að vera fylgjandi þéttingu en það sem býr í stærri eignum og fólk sem ferðast fótgangandi, hjólandi eða í strætó er mun hlynntara þéttingu byggðar en það sem ferðast með einkabíl.40 landsmanna vilja hafa tvö bílastæði við íbúð sína eða fasteign, samkvæmt sömu könnun. 26 vilja eitt bílastæði og 17 vilja þrjú stæði. Fleiri vilja fá fjögur bílastæði við fasteign sína en ekkert. 14 vilja fjögur stæði en aðeins 4 vilja vera án bílastæðis, samkvæmt könnuninni.Yngsta fólkið er bæði líklegast til að vilja ekkert eða fjögur bílastæði og elstu svarendur eru því andsnúnastir að vera án bílastæðis. Fjórðungur svarenda í Kópavogi og Mosfellsbæ vill fjögur bílastæði. Eftir því sem húsnæði fólks verður stærra og heimilisfólk fleira er það líklegra til að vilja fjögur stæði.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More