KKÍ opinberaði nú áðan valið á bestu leikmönnum deildarkeppni Íslandsmótsins og á úrvalsliðunum. Danielle Rodriguez var valinn best kvenna. Auk Danielle eru í úrvalsliði leiktíðarinnar þær Tinna Guðrún Alexandersdóttir (Haukum), Rebekka Rut Steingrímsdóttir (KR), Sara Rún Hinriksdóttir (Keflavík) og Isabella Ósk Sigurðardóttir (Grindavík).Daníel Andri Halldórsson (KR) var útnefndur besti þjálfarinn, Brittany Dinkins (Njarðvík) besti erlendi leikmaðurinn, Sigrún Björg Ólafsdóttir (Haukum) besti varnarmaðurinn og Rebekka Rut Steingrímsdóttir (KR) ungi leikmaður ársins.Í úrvalsdeild karla var Þórir Guðmundur Þorbjarnarson (KR) valinn leikmaður ársins og Jóhann Þór Ólafsson (Grindavík) þjálfari ársins. Þá var Lindars Jaunzems (KR) valinn besti erlendi leikmaðurinn, Ægir Þór Steinarsson (Stjörnunni) varnarmaður ársins og Styrmir Jónasson (ÍA) ungi leikmaður ársins.Í úrvalsliði karla auk Þóris Guðmundar eru svo Ægir Þór (Stjörnunni), Kári Jónsson (Val), Orri Gunnarsson (Stjörnunni) og Kristófer Acox (Val).
March 27, 2026