Þjóðbúningamessa í Austur-Landeyjum sló í gegn
0
World

Þjóðbúningamessa í Austur-Landeyjum sló í gegn

April 20, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Það voru prúðbúnir gestir sem mættu í Krosskirkju í Austur-Landeyjum í gær og var mikill meirihluti þeirra í íslenskum þjóðbúningum enda um sérstaka þjóðbúningamessu að ræða.Fólk streymdi í þjóðbúningum í messuna í Krosskirkju en um árlegan viðburð er að ræða í einhverjum af kirkjunum í Rangárvallasýslu. Börn og unglingar voru áberandi í þjóðbúningum, auk fullorðna fólksins.Mikill áhugi er á þjóðbúningum og þjóðbúningagerð í Rangárvallasýslu en þær Ragnhildur Birna Jónsdóttir og Sigurbjörg Fríða Ólafsdóttir eru aðalþjóðbúningakonurnar í sýslunni enda hafa þær saumað þá marga í gegnum árin.Kannski eigum við Sigurbjörg smá þátt í þessu en svo held ég að almennt á Íslandi sé að aukast áhugi á þjóðbúningum,” segir Ragnhildur og Sigurbjörg bætir við.Við viljum það, við Ragnhildur erum miklar áhugakonur um að sauma og höfum saumað þó nokkra búninga og við erum að reyna að fá fleiri í hópinn með okkur.”Báðar segja þær að það sé svo gaman að sjá hvað unga fólkið er farið að nota mikið þjóðbúninga.Við viljum þetta, þetta er það sem við stefnum að,” segir Sigurbjörg.Og frábært hjá ykkur að vera með svona þjóðbúningamessu?Það er ótrúlega skemmtilegt, það trekkir að, ég vil meina það.

Þjóðbúningamessa í Austur-Landeyjum sló í gegn

Það er ákveðin menning, það er mikil menning og maður finnur það,” segir Ragnhildur.Kristján Arason prestur var mjög ánægður með þjóðbúningamessuna. Þetta var alveg dásamlegt, frábær mæting og góð stund í alla staði. Troðfull kirkja á sunnudagsmorgni klukkan tíu eins og alltaf,“ segir Kristján hlæjandi.Fjöldi fólks sótti þjóðbúningamessu í Krosskirkju í Austur-Landeyjum í gær. Þjóðbúningamessa er árlegur viðburður í Rangárvallasýslu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More