0
Þingmenn þjarma að Starmer í dag
April 20, 2026
Posted 2 days ago by
Mál Peters Mandelson verður sífellt þyngra í skauti fyrir breska forsætisráðherrann Keir Starmer. Hann hyggst í dag reyna að sannfæra þingmenn um að hann hafi ekki haft hugmynd um að sendiherrann fyrrverandi stæðist ekki öryggiskröfur. Breskir þingmenn munu því í dag þjarma að Starmer eftir ávarp þar sem hann reynir að færa sönnur fyrir því að hann hafi ekki vitað að Peter Mandelson stóðst ekki öryggisvottun eftir að hann útnefndi hann sendiherra í Bandaríkjunum haustið 2024.
Mandelson var rekinn síðasta haust vegna vinfengis við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Beiting sérstakrar heimildar til að veita Mandelson öryggisvottun þrátt fyrir það sagði Starmer ófyrirgefanlegt klúður hjá utanríkismálaskrifstofunni og rak Olly Robbins, háttsettan embættismann hennar. Olly Robbins kemur fyrir utanríkismálanefnd neðri deildar þingsins á morgun og margir fyrrverandi embættismenn saka Starmer um að gera hann að blóraböggli eigin mistaka. Liz Kendall, ráðherra tæknimála og aðstoðarforsætisráðherrann David Lammy segja útilokað að Starmer hefði skipað Mandelson hefði hann vitað sannleikann og á föstudag var birt minnisblað sem bendir til að hann hafi ekkert vitað um vanhæfið fyrr á fimmtudag. Starmer er þrátt fyrir það milli steins og sleggju enda hækkaði ákallið strax innan stjórnarandstöðunnar um afsögn hans; óvinsældir hans fara einnig vaxandi meðal almennings og ekki síður innan raða Verkamannaflokksins. Kannanir benda til þess að Starmer sé einhver óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá upphafi, að hluta til vegna nokkurra mistaka sem hann hefur gert í grundvallarstefnumálum.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.