„Þetta eru veruleg vonbrigði“

„Þetta eru veruleg vonbrigði“

Finnbjörn Hermannsson, forseti ASÍ, segir ekki nóg að gert til að létta undir með almenningi í fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 sem kynnt var í gær.Í áætluninni voru minnkuð umsvif ríkisins boðuð sem og lækkun útgjalda. Gangi áætlunin eftir verður afgangur af rekstri ríkissjóðs rúmlega 34 milljarðar árið 2031.Þetta eru veruleg vonbrigði, fyrsta yfirferð á þessari fjármálaáætlun,“ segir Finnbjörn.Hann segir að niðurskurður sé boðaður á mörgum sviðum. Við sjáum húsnæðisbæturnar rýrna, barnabæturnar rýrna og stofnframlög til almenna íbúðakerfisins. Það er ekkert í þessari fjármálaáætlun sem styður það að við þurfum aukið húsnæði hér í landinu.“Vill láta rétta hlut leigjendaFátt í áætluninni, segir Finnbjörn, kemur til móts við vinnandi fólk. Til dæmis er boðuð frekari tekjuöflun af ökutækjum sem hann segir að lendi að stærstum hluta á almenningi.Ýmislegt sem hægt væri að gera til að létta undir með almenningi sé síðan ekki að finna í áætluninni.Þeir hópar sem eru að fara verst út úr verðbólgunni núna. Það er ekkert sem styður við það að þeir fái réttan hlut samkvæmt þessari fjármálaætlun.“ Finnbjörn nefnir að rétta þurfi hlut leigjenda. Setja einhvers konar leigubremsu þannig að leigumarkaðurinn geti ekki hækkað upp úr öllu valdi.“Ríkisstjórnin ætti að hans mati að vinna að því að keyra niður verðbólgu hjá þeim hópum sem séu að halda henni uppi. Verslunin er að keyra upp verðbólgu núna með hækkunum.“ Hann nefnir einnig olíufélögin sem honum þykir mega taka meira högg á sig þegar olíuverð hækkar.

March 27, 2026

Read Full Article
Source Information
RÚV
RÚV
Iceland
Lean left