Þetta eru plöturnar til að leita að á alþjóðlegum plötubúðardegi
0
World

Þetta eru plöturnar til að leita að á alþjóðlegum plötubúðardegi

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Ég myndi halda að það versta væri yfirstaðið. Það er komin það mikil reynsla á streymisveiturnar og þennan nýja veruleika en þær tóra ennþá, þó að veruleikinn sé að þetta gangi upp og niður hjá þeim og reksturinn geti verið alls konar,“ segir Snorri Helgason þegar hann er spurður út í framtíð plötubúðanna.Þetta er bara stemning, bara alls konar stemning,“ segir Ragnar Kjartansson þegar því er velt upp af hverju við ættum að kaupa tónlist í föstu formi.

Þetta eru plöturnar til að leita að á alþjóðlegum plötubúðardegi

Ragnar segist velja sér útgáfuform eftir því hvenær tónlistin kom út. Hann vilji t.d. hlusta á tónlist frá tíunda áratugnum á geisladiskum en margt af nýrri tónlist sé hugsuð fyrir vínilinn.Þú getur horft á áhugaverða umræðu úr Miðstöðinni í spilaranum hér að neðan.Í tilefni alþjóðlega plötubúðardagsins ræddu Snorri Helgason og Ragnar Kjartansson vínil og geisladiska í Miðstöðinni.Ragnar segir að besti hljómurinn sé á geisladiskum svo fólk eigi að beina sjónum sínum að því útgáfuformi sé það að leita eftir því. Þar á eftir koma vínilplöturnar en verstur sé hljómurinn á streymisveitunum. Snorri talaði um að hlýjan í hljóminum á vínilnum væri lykillinn að vinsældum hans.Í dag, 18. apríl, er alþjóðlegi plötubúðardagurinn og í tilefni af því mættu þeir félagar með tvær plötur, eina nýja og eina gömul, sem fólk ætti að leita eftir í plötubúðum í tilefni dagsins.Miðstöðin er nýr þáttur um dægurmenningu og er á dagskrá öll fimmtudagskvöld á RÚV. Í síðasta þætti var rætt um stöðu plötubúðarinnar, vínyl og geisladiska í tilefni af alþjóðlega plötubúðardeginum. Þá kynntumst við einnig nýjum sjónvarpsþáttum sem heita HÆST og fengum heimsókn frá framtíðarpoppstjörnunni Guðjóni Þorgils. Þú getur horft á Miðstöðina í spilara RÚV.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More