„Þetta er örugglega eina landið í heiminum þar sem eru haldin mót í þessum aðstæðum“
March 29, 2026
RÚV
Í gær voru veðuraðstæður á Ólafsfirði frábærar þegar Dagur Benediktsson og Kristrún Guðnadóttir urðu Íslandsmeistarar í 15 km hefðbundinni skíðagöngu á skíðamóti Íslands. Allt annað var upp á teningnum í roki og skafrenningi í dag og keppendur sáu varla fram fyrir sig.Keppnin varð fyrir vikið afar krefjandi en niðurstaðan þó eins og við mátti búast.
Kristrún Guðnadóttir, tvöfaldur ólympíufari, bar sigur úr býtum í kvennaflokki og fagnaði því Íslandsmeistaratitli annan daginn í röð.Mjög mikil snjóblindaÉg var búin að ákveða að byrja hratt og nýta það að ég er hröð í byrjun. Þannig að ég held að ég hafi tekið þetta á fyrstu metrunum. Ég nýtti mína styrkleika,“ segir Kristrún sem játar því að aðstæður hafi verið erfiðar.Ég hef örugglega sjaldan skíðað í svona krefjandi aðstæðum. Það var mjög mikil snjóblinda, það var erfitt að sjá, en það er bara að hafa gaman að þessu. Þetta er örugglega eina landið í heiminum þar sem eru haldin mót í þessum aðstæðum. Ólafsfirðingar standa sig eins og hetjur að halda þessu uppi og merkja brautirnar eins vel og þeir geta. Þetta var bara stemning.“Aðstæður til skíðagöngu voru skrautlegar og langt frá því að vera góðar þegar keppt var í skíðagöngu með frjálsri aðferð á Skíðamóti Íslands á Ólafsfirði í dag. Veðrið setti svo sannarlega strik í reikninginn.Það sem maður ólst upp við að gera“Dagur Benediktsson sem keppti eins og Kristrún á Ólympíuleikunum á Ítalíu í síðasta mánuði, undirstrikaði svo yfirburði sína í karlaflokki með því að verða Íslandsmeistari þar, rétt eins og í göngunni í gær.Það er bara að stilla hausinn rétt og berjast alla leið,“ sagði Dagur sem fannst krefjandi en skemmtilegt að keppa í þessu veðri. Þetta er svona það sem maður ólst upp við að gera. Þetta er svona okkar heimaveður í rauninni. Að keppa í svona vindi og snjó.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.