Þessi eru tilnefnd til Eddunnar 2026
April 10, 2026
RÚV
Tilnefningar til kvikmyndaverðlauna Eddunnar 2026 voru kynntar í dag. Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur veitt verðlaunin árlega frá 1999.Árið 2024 voru kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin aðskilin og Edduverðlaunin hafa því undanfarin tvö ár aðeins veitt verðlaun fyrir kvikmyndir. Í byrjun þessa árs var tekin sú ákvörðun að Edduverðlaunin skulu einnig verðlauna fyrir leikið sjónvarpsefni en Sjónvarpsverðlaunin halda áfram að verðlauna fyrir annað sjónvarpsefni.Tilnefnt var í 35 flokkum fyrir kvikmynda- og sjónvarpsverk sem frumsýnd voru á tímabilinu 1.
janúar til 31. desember 2025. Einnig verða heiðursverðlaun ÍKSA veitt ásamt því að uppgötvun ársins hlýtur viðurkenningu, þau verðlaun fær einstaklingur sem ekki hefur áður hlotið tilnefningu í viðkomandi fagverðlaunaflokki en hefur vakið sérstaka athygli fyrir framúrskarandi framlag á árinu.Kvikmyndin Ástin sem eftir er hlaut flestar tilnefningar, eða 13 talsins. Eldarnir hlaut 12 tilnefningar og The Damned 8. Af leiknu sjónvarpsefni hlutu þættirnir Felix Klara flestar tilnefningar eða 11 talsins, King and Conqueror hlaut 11 og Vigdís 9.Alls bárust 51 verk og 256 innsendingar til fagverðlauna. Í ár var einnig bætt við 15 nýjum flokkum fyrir leikið sjónvarpsefni og fagverðlaun þeim tengdum. Innsendar voru þrettán heimildamyndir, sjö heimildastuttmyndir, ellefu stuttmyndir, sex kvikmyndir í fullri lengd, tíu leiknar sjónvarpsþáttaseríur, og sjö erlendar kvikmyndir.44 einstaklingar sátu í níu valnefndum fyrir hina 35 verðlaunaflokka. KPMG hefur yfirumsjón með kosningu og talningu atkvæða.Edduverðlaunin verða afhent í lok maí.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.