Í dag, 28. mars, eru nákvæmlega 80 ár frá fyrsta og eina Íslandsmeistaratitli ÍR í handbolta. ÍR sigraði Hauka eftir framlengdan úrslitaleik Íslandsmótsins árið 1946.Margt er merkilegt við þennan Íslandsmeistaratitil fyrir utan það að ÍR hefur aldrei unnið titilinn fyrr né síðar, hvorki í karla- né kvennaflokki. Í liði ÍR-inga voru tveir af þekktustu frjálsíþróttamönnum landsins á þeim tíma, sem báðir áttu eftir að keppa fyrir Ísland á Ólympíuleikunum í London tveimur árum seinna.Verðandi ólympíufarar með mikilvæg mörkFinnbjörn Þorvaldsson spretthlaupari og langstökkvari var annar þeirra, en Finnbjörn var jafnframt fánaberi Íslands á Ólympíuleikunum árið 1948. Hinn var spjótkastarinn Jóel Sigurðsson. Þeir spiluðu báðir lykilhlutverki í Íslandsmeistaratitlinum í handbolta tveimur árum fyrr, því Jóel jafnaði í 19-19 undir lok seinni framlengingar úrslitaleiksins við Hauka og Finnbjörn skoraði svo sigurmarkið og tryggði sigurinn, 20–19 – og Íslandsmeistaratitillinn var því í höfn hjá ÍR-ingum.Aðrir leikmenn Íslandsmeistaraliðs ÍR voru Gunnar Sigurjónsson, Ingólfur P. Steinsson, Sigurgísli Sigurðsson, Ingvi Guðmundsson og Guðmundur Magnússon. Þetta sama lið auk Hermanns Þorsteinssonar hafði orðið Reykjavíkurmeistari árið áður.Fyrirkomulag Íslandsmótsins árið 1946 var þannig að keppt var í tveimur fjögurra liða riðlum og hófst sú keppni 11. mars og mættust svo sigurlið A- og B-riðils í hreinum úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn hinn 28. mars.Skoraði sigurmarkið dauðþreytturÞegar ÍR og Haukar mættust aftur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn árið 2003 rifjaði Finnbjörn upp sigurmark ÍR í úrslitaleik liðanna árið 1946 í Fréttablaðinu. Það var framlengt og mig minnir að það hafi verið tvær framlengingar en þori ekki að fullyrða um það. Ég man bara að þegar ég skoraði sigurmarkið var ég orðinn þreyttur. Ég stóð á línunni og missti boltann sem skoppaði tvisvar og lenti í markinu. Það var úrslitamarkið,“ sagði Finnbjörn í Fréttablaðsviðtalinu fyrir 23 árum.Aðeins nokkrum vikum eftir að hafa tryggt ÍR sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil í handbolta var Finnbjörn svo kominn á Evrópumótið í frjálsíþróttum í Ósló í Noregi. Þar komst hann í úrslit 100 metra hlaupsins og endaði í 6. sæti eftir að hafa hlaupið á 10,9 sekúndum í úrslitahlaupinu.Allir liðsmenn meistaraliðs ÍR í handboltanum vorið 1946 voru frjálsíþróttamenn eins og Finnbjörn en aðstæður til keppnisiðkunar í frjálsíþróttum voru ekki sérlega góðar á þeim tíma nema rétt yfir sumarið. Við þurftum hreyfingu yfir veturinn og þótti handboltinn tilvalinn. Við æfðum í ÍR-húsinu, jafn lítið og það var, en fyrst var keppt í húsi Jóns Þorsteinssonar, gegnt Þjóðleikhúsinu. Síðar var keppt í Hálogalandi en það var langt út úr bænum og var stórmál að komast þangað,“ sagði Finnbjörn Þorvaldsson einnig í Fréttablaðinu árið 2003.Auk Finnbjörns úr Íslandsmeistaraliði ÍR keppti Jóel Sigurðsson í spjótkasti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Ósló sama sumar og handboltatitillinn vannst. Jóel komst í úrslit spjótkastskeppninnar á EM og endaði í 10. sæti. Jóel keppti einnig á Ólympíuleikunum í London árið 1948 og á Evrópumótinu í Brussel árið 1950 þar sem hann lauk keppni í 12. sæti.Jóel átti Íslandsmetið í spjótkasti í 25 árÁrið 1949 setti Jóel Íslandsmet í spjótkasti þegar hann kastaði 66,99 metra, en Íslandsmet Jóels stóð í 25 ár.Ingólfur Steinsson úr handboltaliði ÍR var frjálsíþróttamaður eins og aðrir úr meistaraliðinu. Hann var um tíma formaður frjálsíþróttadeildar ÍR, sat í stjórn Frjálsíþróttasambands Íslands og var fararstjóri frjálsíþróttamanna á fjölmörgum mótum erlendis, meðal annars á Evrópumótinu í Brussel árið 1950. Heimildir Ágúst Ásgeirsson. Heil öld til heilla. Saga ÍR í 100 ár. Reykjavík: Íþróttafélag Reykjavíkur, 2007.ÍR varð Reykjavíkurmeistari í handknattleik karla árið 1945“, Þróttur, 1. apríl 1946.Skoppaði tvisvar og lenti í markinu“, Fréttablaðið, 6. maí 2003, 19.Steinar J. Lúðvíksson. Handknattleiksbókin. Saga handknattleiksins á Íslandi 1920–2010. Reykjavík: Hólar, 2012.Þorbjörn Guðmundsson. Handknattleiksmeistaramótið var fjölmennasta kepni sem hjer hefir verið háð“, Morgunblaðið, 13. apríl 1946.Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson. Með harðfisk og hangikjöt að heiman. Undirbúningur og þátttaka Íslands á Sumarólympíuleikunum í London árið 1948. Reykjavík: Sögufélag, 2024.
March 28, 2026