„Það þarf að nýta seigluna sem er í okkur Grindvíkingum“
0
World

„Það þarf að nýta seigluna sem er í okkur Grindvíkingum“

April 14, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Í lok síðasta mánaðar voru sagðar fréttir af því að skólastjóri hefði verið ráðinn í Grindavík og stefnt væri að skólahaldi næsta haust, tveimur vikum síðar birti Grindavíkurnefnd rammaáætlun sína um endurreisn Grindavíkur, í henni var lagst gegn skólahaldi í bænum.Árni Þór Sigurðsson, formaður Grindavíkurnefndar, segir að ákvörðunin sé byggð á þeim gögnum og skýrslum sem nefndin hefur safnað um aðstæður og líðan Grindvíkinga.

„Það þarf að nýta seigluna sem er í okkur Grindvíkingum“

Niðurstaða þeirra skýrslu sé sú að skólahald sé ekki rétt fyrsta skref í endurreisn Grindavíkur og nefndin þurfi að vera varfærin.Það geta líka verið sprungur á sálinni, það er ekki síst sá þáttur sem við höfum orðið vör við, m.a. í erlendum rannsóknum, að láta ekki börn þurfa að vera í þeirri stöðu að ganga í gegnum aðra rýmingu.“Nánar var fjallað um málið í Kastljósi kvöldsins.Tilmæli Grindavíkurnefndar um að hefja ekki skólahald næsta haust hafa ekki fallið í góðan jarðveg á meðal Grindvíkinga sem hyggjast halda heim. Íbúi segir börn grundvallarstoð í uppbyggingu samfélags.Börn sem þrá ekkert heitar en að halda heimKristín María Birgisdóttir, Grindvíkingur, segir tilmæli nefndarinnar fara öfugt ofan í þá Grindvíkinga sem hafa hug á því að snúa aftur heim; foreldrar séu best til þess fallnir að ákveða hvað best sé fyrir sín börn.Auðvitað eru mörg börn sem blómstra annars staðar en önnur þrá ekkert heitar en að komast heim og blómstra þar.“Kristín dregur tilmæli Grindavíkurnefndar í efa og segir að án barna sé ekkert samfélag og því sé skólahald grundvallarstoð í uppbyggingu bæjarins.Hver og einn taki áhættunaÁrni segir að fólki sé velkomið að flytja aftur til Grindavíkur, hver og einn taki þá áhættu sem því fylgi á meðan atburðarás eldgoss sé enn möguleiki.Af okkar hálfu erum við að koma með tilmæli, við mælum ekki með því að skólahald sé hafið í haust vegna þess að atburðarásin er enn í gangi.“Eldgos er enn líklegasta sviðsmyndin samkvæmt Veðurstofunni. Árni segir að nefndin taki mið af sérfræðiáliti Veðurstofunnar og því sé ekki talið skynsamt að skólahald verði fyrsta skref endurreisnar. Markmiðið sé þó alltaf að endurreisa Grindavík.Þurfi að nýta seiglu GrindvíkingaKristín nefnir að í grunninn sé Grindavík mjög fjölskylduvænt samfélag og að marga langi að koma aftur til síns heima.Auðvitað upplifum við það líka að fólk sé orðið dálítið þreytt á okkur, við viljum bara og heimtum, en ég vil taka það fram að Grindvíkingar eru mjög þakklátir og kunna að meta það sem hefur verið gert.“Árni og Kristín sammælast um að seigla Grindvíkinga sé mikil og að hún sé mikill drifkraftur þegar kemur að uppbyggingu í sveitarfélaginu.Það þarf að nýta seigluna sem er í okkur Grindvíkingum,“ segir Kristín.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More