„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“
0
World

„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“

April 18, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Undanfarinn vetur hefur verið annasamur hjá söng- og leikkonunni Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur sem hefur staðið á sviði Þjóðleikhússins, kennt og lesið inn hljóðbækur. Ég er svolítið þreytt en rosa nærð á sálinni. Það er svo mikið að gera, skemmtilegt að gera,“ segir Sigríður sem leikur í bæði Línu langsokk og Ormstungu flest kvöld vikunnar. Sigurlaug Margrét Jónasdóttir ræddi við hana í Segðu mér á Rás 1.Ég er mjög góð í að skipuleggja mig en ég er líka mjög bjartsýn manneskja þannig að það gengur einhvern veginn allt upp.

„Það fyndna kemur oft fram í því hræðilega“

Svo á ég líka ofboðslega gott fólk í kringum mig.“Hún hefur þurft að finna gleðina í sorginni og það fyndna í hinu hræðilega.Dýrmætt að gefa fólki þessa upplifunÞegar Sigríður leikur í Línu langsokk allar helgar vandar hún sig mikið við að verja tíma með yngstu dóttur sinni sem er sjö ára. Og vera þá með henni, ekki bara setja hana fyrir framan sjónvarpið heldur gera eitthvað skemmtilegt saman. Svo fær hún stundum að koma með mér upp í leikhús og sitja í fanginu á mér á meðan það er verið að sminka mig.“Hún segir það gefa sér mikið að taka þátt í barnasýningum og sjá andlitin á börnunum þegar þau upplifa leikhústöfrana. Ég geymi það rosa mikið hjá mér, hvað þetta er dýrmætt starf og mikilvægt að gefa fólki þessa upplifun.“Sigríður er ekki komin af neinum leiklistarættum og því alast börn hennar upp á svolítið annan hátt en hún sjálf. Hún er leikarabarn, henni finnst ekkert sjálfsagðara en að koma með mér upp í Sýrland að talsetja og er byrjuð sjálf. Hún fer inn í stúdíó, setur á sig heyrnartól og finnst það ekkert mál.“Ekki bara tilfinningarússíbani heldur eitthvað sem þurfti að lagaEiginmanni sínum, Karli Olgeirssyni, kynntist Sigríður heima hjá foreldrum sínum. Þá voru þau Margrét Eir, Orri Huginn Ágústsson og Bjarni Snæbjörnsson að æfa söngleikjaprógramm og hann kom til að leika á píanóið. Ég varð rosalega skotin í honum strax.“ Þetta var árið 2013.Hann er svo rólegur, það tók mig smá tíma að fá hann til að taka af skarið. Ég endaði á að gera það held ég.“ Ári síðar kepptu þau í Söngvakeppninni með lagið Lífið kviknar á ný.Þau hjónin hafa gengið í gegnum ýmislegt og verið óhrædd við að tjá sig um það opinberlega. Ég varð ólétt vorið 2014 og hann átti að fæðast 21. desember. Ég fór tvær vikur fram yfir og svo bara fór fæðingin ekki vel. Það var náttúrlega bara rosalega erfitt.“Hún hafi ekki fengið viðeigandi aðstoð á spítala þegar fæðingin fór í gang sem varð til þess að drengurinn, Nói Hrafn, náði ekki að koma heill á húfi í heiminn. Það var svo margt sem fór úrskeiðis. Ég er með rosalega sterka réttlætiskennd og maður berst alltaf fyrir börnunum sínum. Þótt hann hafi verið dáinn þá vildi ég berjast fyrir honum og við bæði.“ Hún hafi því tjáð sig opinberlega og kært málið.Það hafi verið ákveðin heilun í að bæði landlæknir og ríkið hafi viðurkennt mistök og beðist afsökunar. Landlæknir hafi tekið undir 15 af 16 kæruliðum. Þetta var ekki bara einhver tilfinningarússíbani fyrir okkur heldur var þetta í alvörunni eitthvað sem þurfti að laga.“Las athugasemdir um útlit sitt eftir að hafa misst fósturFerlið tók um þrjú ár en Sigríður segir lífið hafa haldið áfram á meðan. En það var mjög erfitt. Mér finnst mjög mikilvægt að tala um það en í kjölfarið missti ég fóstur nokkrum sinnum.“Svo fórum við í frjósemismeðferð sem tók líka rosalega á, líkamlega og andlega fyrir mig.“Verandi opinber persóna hafi hún fengið ýmsar athugasemdir um sjálfa sig og las til að mynda hvað hún væri orðin feit. Ég tók þátt í Söngvakeppninni, nýbúin að missa fóstur og er samt að halda áfram, eins og við gerum, af því að maður þarf að mæta í vinnuna og þetta er vinnan mín. Þá eru komment um hvernig maður lítur út,“ segir Sigríður sem hugsaði þá með sér hvað þetta fólk ætti bágt.Mér fannst samt alltaf svo gott að fá að halda áfram að vinna.“Hún minnist augnabliks sem henni þótti magnað, sér í lagi vegna þess að hún hafi unun af því að gera efni fyrir börn. Í vikunni sem sonur þeirra var jarðsettur fékk Sigríður símtal frá teiknimyndaframleiðanda sem tjáði henni að Pixar hefði samþykkt að hún skyldi leika Gleði í Á röngunni, eða Inside Out. Já en ég kemst ekki strax, er upptekin í þessari viku,“ svaraði hún.Teiknimyndin snýst um að lifa með gleði og sorg saman og kom verkefnið því á hárréttum tíma. Bjarni vinur minn dró mig líka inn á Improv Ísland námskeið og það hjálpaði mér svo mikið að leita að því fyndna. Því það fyndna kemur oft fram í því hræðilega.“Lífið heldur alltaf áfram og núna á Sigríður sjö ára dóttur, Rán. Hún er algjör orkusprengja, ótrúlega skemmtileg. Hún er eins og engill, með hvítt krullað hár, risastór augu og alltaf glöð og alltaf í stuði. Hún er frábær.“Við erum stundum svolítið þreytt því hún er svolítið orkumikil en hún er ótrúlega skemmtileg.“Hefur lært að eyða ekki tíma í fólk sem finnst hún ekki skemmtilegSigríður fór í framhaldsnám hjá söngleikjadeild breska leiklistarskólans Guildford þar sem hún bjó í tvö ár og hélt síðan til Kanada á hin ýmsu söngnámskeið. Ég var ekkert búin að gera mikið hérna heima áður en ég fór út. Ég var búin að vera í FÍH, söngskólanum og menntaskólasýningum.“Hún segir námið erlendis hafa verið skemmtilegt en erfitt að því leyti að hún hafi lent í leiðinlegum bekk þar sem mikil samkeppni ríkti.Hún er þó mikil bjartsýnismanneskja og hefur lært að sjá það góða í lífinu og velja sér fólkið sem hún vill vera innan um. Ég hef ekki mikinn tíma fyrir fólk sem finnst ég ekki skemmtileg. Það tók mig alveg tíma að læra þetta og ég er enn þá alltaf að læra þetta.“Bjartsýnin helst þó saman í hendur við ást hennar á söngleikjum. Hún hefur tekið þátt í fjölmörgum söngleikjum og haldið úti tónleikaröðinni Söngleikjastælar ásamt Bjarna Snæbjörnssyni. Þau kynntust árið 2007 í söngleiknum Jesus Christ Superstar í Borgarleikhúsinu og urðu strax eins og systkini.Glöð að fá að verða eldriSigríður fagnar fimmtugsafmæli sínu þann 9. maí með því að leika í tveimur sýningum af Línu langsokk og svo í Ormstungu daginn eftir. Ég er svo glöð að fá að verða eldri og geta enn þá mætt í ræktina og leikið og dansað. Mér finnst ég bara aldrei hafa verið hraustari.“Það verður nóg um að vera hjá Sigríði í sumar þegar leikhúsin loka, hún verður með hádegistónleika í Eldborg eina vikuna og svo ætlar hún að ferðast til Svíþjóðar með fjölskylduna. Ég er búin að lesa svo margar sænskar glæpasögur fyrir Storytel að ég ætla að fara í mína eigin glæpasagnagöngu.“Sigríður Eyrún þurfti að finna gleðina í sorginni þegar sonur hennar lést eftir erfiða fæðingu. Lífið hélt áfram þrátt fyrir að það væri erfitt en bjartsýni hefur alltaf verið hennar leiðarljós.Rætt var við Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur í Segðu mér á Rás 1. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More