„Það er ekkert samfélag án barna“
0
World

„Það er ekkert samfélag án barna“

April 11, 2026
RÚV
Scroll

Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar Grindavíkur, segir ekkert samfélag geta verið án barna. Grindavíkurnefndin lýsti því yfir í gær að hún mældi ekki með því að barnafjölskyldur myndu snúa aftur til bæjarins á meðan óvissa varir.Hún segir að afstaða nefndarinnar hafi komið bæjaryfirvöldum verulega á óvart.Það er ekkert samfélag án barna og við ætlum bara að leggja megináherslu á það að hér verði örugg byggð fyrir fjölskyldur, við erum bjartsýn á það,“ sagði Ásrún í hádegisfréttum í dag.Grindavíkurnefndin kynnti rammaáætlun sína um endurreisn Grindavíkur í gær.

„Það er ekkert samfélag án barna“

Þar segir að stjórnvöld þurfi að undirbúa viðbragðsáætlanir fyrir fleiri möguleg gos- og hættusvæði á Reykjanesskaga, jafnvel samtímis.Til stendur að skólahald hefjist að nýju næsta haust í Grindavík en Grindavíkurnefndin mælir hins vegar ekki með því fyrr en áhættumat gefur tilefni til.Lagðar eru til ýmsar leiðir til endurreisnar í skýrslu nefndarinnar. Styrkja þurfi leiðir sem stuðla að félagslegum tengslum Grindvíkinga og tryggja þurfi skipulagða og mælanlega eftirfylgni með félagslegum áhrifum hamfaranna.Það eru margir mjög jákvæðir punktar í þessari skýrslu og það er talað um seiglu atvinnulífsins og mikil tækifæri sem hérna eru og það er líka talað um mikla seiglu fólksins og þennan félagsauð sem er hérna í Grindavík,“ segir Ásrún.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More