„Það byrjar allt á samtali“
0
World

„Það byrjar allt á samtali“

April 15, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Forseti Íslands og forseti Slóveníu hittust í dag í tengslum við árlegt Velsældarþing sem hefst í Reykjavík á morgun. Þróun heimsmála var í brennidepli og forystuhlutverk í breyttum heimi.Við höfum báðar í okkar störfum lagt mikla áherslu á samtalið. Í heimi þar sem traust er kannski þverrandi og upplýsingaóreiða mikil þá þurfum við að hafa hugrekki til þess að tala um það sem skiptir máli og gera það í einlægni og skiptast á skoðunum,“ segir Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.Síðdegis var opinn fundur í Veröld – húsi Vigdísar Finnbogadóttur, sem fagnar 96 ára afmæli í dag.

„Það byrjar allt á samtali“

Þar ræddu forsetarnir þær leiðir sem leiðtogar, ekki síst kvenleiðtogar, hafa til að láta gott af sér leiða, jafnt heima sem á alþjóðavettvangi.​​​​ ‌Konur hafa aðra sýn á heimsmálin og leggja mikið upp úr virku samtali, annað en flestir karlmenn sem eru á valdastóli í dag,“ segir Nataša Pirc Musar, forseti Slóveníu. Það eru alltaf til lausnir en ef við tölum ekki saman þá er erfitt að finna þær,“ segir Halla. Í ár eru 40 ár frá því að mjög mikilvægt samtal átti sér stað hér á Íslandi þegar Reagan og Gorbatsjov, þá leiðtogar stórveldanna tveggja, hittust hér og hófu samtal sem leiddi til endaloka kalda stríðsins. Það byrjar allt á samtali.“‌ ​‍‌‍‌‍‍‌

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More