Búist er við að milljónir Bandaríkjamanna taki þátt í vítækum mótmælagöngum gegn Donald Trump Bandaríkjaforseta í dag. Þetta er í þriðja sinn sem grasrótarhreyfingin Engir kóngar No Kings“ efnir til mótmæla gegn forsetanum og stjórnarháttum hans frá því að hann varð endurkjörinn forseti.Skipuleggjendur mótmælanna segja að yfir 3.000 mótmælagöngur séu ráðgerðar vítt og breytt um Bandaríkin, meira að segja í bænum Kotzebue í Alaska sem er norðan heimskautsbaugs.Tónlistarmaðurinn Bruce Springsteen, sem er gallharður andstæðingur forsetans, kemur fram á mótmælunum í St. Paul, sem er höfuðborg Minnesota. Hann mun flytja lag sitt Streets of Minneapolis“ en lagið samdi hann til minningar um Renee Good og Alex Pretti, sem voru myrt af ICE-liðum fyrr á þessu ári.Fyrstu skipulögðu mótmæli hreyfingarinnar voru í júní á 79 ára afmæli forsetans. Síðari mótmælagangan var í október og talið er að um sjö milljónir manns hafi tekið þátt í mótmælunum þá.Ánægja með Trump mælist um 40 í Bandaríkjunum. Þingkosningarnar eru fram undan í nóvember en búist er við að Repúblikanar tapi bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni á bandaríska þinginu í kosningunu.
March 28, 2026