0
Tal um aðlögun þvæla og hræðsluáróður
April 20, 2026
Posted 4 hours ago by
Forsætisráðherra segir allt tal um að aðildarviðræður snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þvælu og kallar eftir dæmum um slíka aðlögun frá fyrri aðildarviðræðum.Stjórnarandstaðan hefur undanfarna daga sakað ríkisstjórnina um blekkingar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna. Þær komi ekki til með að snúast um hvað sé í boði heldur aðlögun að Evrópusambandinu.
Spratt sú umræða upp eftir fréttaskýringu Morgunblaðsins á fimmtudaginn.Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, hélt áfram með málið á Alþingi í dag. Stendur forsætisráðherra að fullu við það sjónarmið að segi þjóðin já í ágúst þá hefjist ekkert ferli hér á landi sem lúti að lagalegri, stjórnsýslulegri eða pólitískri aðlögun að Evrópusambandinu? Engin aðlögun?“Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ljóst að stjórnarandstaðan ætlaði eingöngu að nota hræðsluáróður í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Síðan þessi þvæla — já, forseti, ég kalla þetta þvælu — um að ef þjóðin segi já fari sjálfkrafa af stað eitthvert ferli þar sem hrannast inn mál inn í þingið sem sjálfkrafa muni afgreiðast og gera það að verkum að Ísland verður orðið eitthvert annað land hérna undir lok næsta kjörtímabils.“Kallaði Kristrún eftir dæmum um óafturkræfa aðlögun eftir síðustu aðildarviðræður. Getur einhver nefnt mér einn hlut? Hvaða aðlögun fór hér af stað? Það var samkomulag, eins og hér er vitnað í, um að slíkar breytingar myndu ekki eiga sér stað fyrr en búið væri að samþykkja samninginn.“Engin aðlögun segir í minnisblaðiVitnað er til umrædds samkomulags í minnisblaði til utanríkismálanefndar þar sem segir meðal annars að íslensk stjórnvöld og ESB hafi sammælst um að ráðast ekki í lagabreytingar og breytingar á stofnunum fyrr en fyrir lægi að Ísland yrði aðildarríki. Breytingar sem af aðild leiddu ættu því ekki að eiga sér stað fyrr en íslenska þjóðin hefði tekið afstöðu til aðildarsamnings,“ segir í minnisblaðinu.Í fréttaskýringu Morgunblaðsins segir að greint hafi verið frá þessu samkomulagi í skýrslu Össurar Skarphéðinssonar þáverandi utanríkisráðherra árið 2013 en beinum heimildum sé ekki til að dreifa um það.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.