Tabatabaei gerði jafntefli en heldur toppsætinu
March 30, 2026
RÚV
Áttunda umferð mótsins var í dag og jafnframt sú næstsíðasta því mótinu lýkur á morgun. Mikil athygli var á viðureign íranska Amin Tabatabaei og enska Matthew Wadsworth því þeir verma toppsætin. Tabatabaei var efstur og hafði unnið allar sínar sjö skákir fyrir viðureignina. Sæti neðar var Wadsworth, einum vinningi á eftir þeim íranska.Tabatabaei hafði möguleika á því að klára mótið með fullt hús stiga, afrek sem engum hefur tekist hingað til.
Það er þó óhætt að segja að kapparnir hafi verið stál í stál og að loknum spennandi leik skildu þeir jafnir. Tabatabaei nær því ekki fullu húsi en heldur þó toppsætinu fyrir lokaumferðina á morgun og enn er Wadsworth einum vinningi frá ásamt fjórum öðrum skákmönnum.Dagur tekur forystuna meðal ÍslendingaSá Íslendingur sem er fremstur er Dagur Ragnarsson með sex vinninga í 20. sæti. Dagur mætti Alisher Suleymenov, stórmeistara frá Kasakstan í dag og bar sigur úr býtum. Dagur er alþjóðlegur meistari með 2376 elo stig og Suleymenov með 2523.Vignir Vatnar Stefánsson vann sína viðureign við spænska Miguel Ruiz og er nú í 33. sæti með 5,5 vinninga líkt og Guðmundur Kjartansson sem er sæti ofar.Lokaumferð mótsins er á morgun.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.