Svartfjallaland færist nær Evrópusambandinu
0
World

Svartfjallaland færist nær Evrópusambandinu

April 22, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Svartfjallaland færðist skrefi nær Evrópusambandinu í dag þegar ríki sambandsins samþykktu að hefja vinnu við inngöngusáttmála landsins. Settur verður á laggirnar sérstakur starfshópur til að setja saman drög að samningi.Antonio Costa forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir þetta mikilvægt skref í átt að inngöngu. Nú sé Evrópusambandið í fyrsta sinn í áratug að telja niður til næstu stækkunar.

Svartfjallaland færist nær Evrópusambandinu

Nýtt ríki hefur ekki verið tekið inn í sambandið síðan Króatía gekk inn árið 2013 en Svartfjallaland og Albanía hafa verið talin komast næst því.Stefna að aðild eftir tvö árBúið er að loka 14 af 35 köflum í aðildarviðræðum Svartfjallalands við Evrópusambandið. Hinir kaflarnir eru þegar opnir. Til samanburðar lokaði Ísland 11 köflum í sínum aðildarviðræðum áður en þær voru stöðvaðar árið 2013. Stjórnvöld í Svartfjallalandi stefna að því að vera orðin aðilar að sambandinu eftir tvö ár.Svartfjallaland, sem áður var hluti af Júgóslavíu, varð sjálfstætt ríki árið 2006 og sótti fyrst um aðild að Evrópusambandinu í desember 2008. Formlegar aðildarviðræður hófust svo 2012. Um 600 þúsund manns búa í landinu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More