Svaf í klukkustund milli útkalla
April 4, 2026
RÚV
Línumenn á Egilsstöðum höfðu í nægu að snúast í gær þegar raflínur slitnuðu og staur brotnaði við Hjaltastaðaþinghá. Hafliði Bjarki Magnússon, verkstjóri hjá Rarik, segir það heldur sjaldgæft að tvær ólíkar bilanir komi upp með svo stuttu millibili.Aðfaranótt föstudagsins langa bárust fregnir af því að rafmagni hefði slegið út við Hjaltastaðaþinghá við Bjarglandsá á Héraði.
Hafliði fór á staðinn ásamt samstarfsmanni sínum en þegar þangað var komið sáu þeir að raflína hafði skemmst í snjókomunni og rokinu sem þar hefur geisað undanfarna daga.Þegar Hafliði og félagi hans höfðu lagað línuna héldu þeir að þar með væri verkefninu lokið. Sú var þó ekki raunin.Þá förum við bara heim og förum að sofa og teljum okkur vera búna að gera við þetta,“ segir Hafliði sem náði að sofa í klukkutíma áður en hann hélt aftur af stað út í vonskuveðrið.Ég var búin að sofa í klukkutíma þegar síminn hringir aftur og rafmagnið hafði ekkert farið á á þessu svæði. Þá förum við aftur á staðinn og þá eru þessi öryggi farin út.“Bíða eftir betra veðriStarfsmenn Rarik þurftu því að fara aftur af stað um morguninn eftir langa nótt og lítinn svefn. Að sögn Hafliða á það til að gerast að staurar brotni og vírar slitni í vondu veðri, en hann segir ekki algengt að slíkt gerist á tveimur stöðum samtímis.Um morguninn bættist við mannskapur frá Egilsstöðum og var rafmagninu komið á með bráðabirgðalagfæringum.Þeir komu með efni til þess að spelka við til bráðabirgða þannig að það á eftir að fara þarna aftur og skipta um þennan staur. Þá þarf að koma einhverjum vinnuvélum líka. Það er verkefni næstu viku einhvern tímann, vonandi þegar það verður gott veður,“ segir Hafliði.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.