0
Sumarið fer sveitalega af stað í fimmunni
April 23, 2026
Posted 2 hours ago by
Kacey Musgraves - Dry SpellÞað gengur ekki vel í ástarmálunum hjá köntrí prinsessunni Kacey Musgraves þessa dagana þrátt fyrir fulla vasa af seðlum, baunum og beikoni eins og segir í hennar nýjasta lagi. Lagið heitir Dry Spell og er klassískur alt köntrí slagari sem minnir kannski helst á sænku sveitina Cardigans á góðum degi.Beck - Ride LonesomeTónlistarmaðurinn Beck Hanson er ekki síður miður sín en Kacey Musgraves í sínu nýjasta lagi Ride Lonesome.
Að venju fer það Beck gríðarlega vel að vera smá blúsaður en hann undirbýr þessa dagana tónleikaferðalag um Bandaríkinn.Kevin Morby - BadlandsJá það er ekki bara hopp og hí þó það sé komið sumar en við siglum enn í sveitalegri eyðimerkurstemmningu en þó aðeins jákvæðari. Kevin Morby býður upp á lagið Badlands sem er það nýjasta frá honum af væntanlegri plötu Little Wide Open en sú er framleidd af Aron Dessner úr The National.Kurt Vile - Chance to BleedJæja þá þá fara leikar að æsast með Kurt Vile þó hann sé ekkert að fara á límingunum af stuði í lagi sínu Chance to Bleed. Hér er svo sannarlega ekkert verið að finna upp hjólið heldur bara hellt upp á hefðbundið og sígrænt eins og aðdáendur kappans vilja hafa það.Jack White - G.O.D. And The Broken RibsÞað er vel við hæfi að enda fyrstu sumarfimmuna með því að frelsast í messu hjá Jack White. Hann heldur áfram að predika yfir aðdáendum sínum í nýjasta lagi sínu G.O.D. And The Broken Ribs sem gerist í aldingarðinum góða Eden.Fimman á sænska plötuspilaranum
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.