Störf tapast þegar auglýsingafé streymir úr landi
March 31, 2026
RÚV
Ríflega helmingur þeirra 29,4 milljarða króna sem varið var til auglýsingakaupa á Íslandi 2024 féll í skaut erlendra miðla. Nýjar tölur frá Hagstofu Íslands sýna að auglýsingakaup í erlendum miðlum nánast 26-földuðust milli áranna 2009 og 2024.Anna Kristín Kristjánsdóttir, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa (SÍA), segir að lengi hafi verið bent á þessa þróun.Stærsta áhyggjuefnið er ekki bara hlutfallið heldur er það hraðinn,“ segir hún og vísar þar til þess að á sama tíma og auglýsingatekjur erlendra miðla margfölduðust varð aðeins átta prósenta vöxtur hjá íslensku miðlunum.Anna Kristín segir að ekki sé aðeins um fjölmiðlamál að ræða, heldur snerti auglýsingar margt.
Þetta er virðiskeðja. Þegar auglýsingafé flyst úr landi þá tapast störf – kvikmyndagerðarfólks, tónlistarfólks, leikara, hönnuða, allra sem vinna að framleiðslu íslensks auglýsingaefnis.“Þróunin kemur Önnu Kristínu ekki á óvart. Hún segir þó vekja athygli hve hátt hlutfall, eða 97 prósent, greiðslukortaviðskipta í auglýsingakaupum erlendis fari til móðurfyrirtækja Google og Facebook. Það sé samþjöppun sem eigi sér ekki hliðstæðu í öðrum geirum.Við þurfum að hafa í huga að þetta er líklega vanmat. Stór hluti fyrirtækja greiðir í dag í gegnum Revolut og aðrar erlendar Fintech-lausnir — þær greiðslur koma ekki fram í kortamælingum Hagstofunnar,“ segir Anna Kristín. Raunverulegt útstreymi sé því mögulega hærra en tölurnar sýna.Fé í auglýsingar til erlendra ferðamannaTvær líklegar ástæður fyrir auknum auglýsingakaupum í erlendum miðlum, að mati Hagstofunnar, eru annars vegar tilkoma og útbreiðsla samfélagsmiðla og hins vegar markaðssetning íslenskrar ferðaþjónustu erlendis. Auglýsingafénu er ekki öllu beint að íslenskum neytendum og útstreymi auglýsingafjár getur ekki reiknast nema að hluta á kostnað innlendra miðla.Þetta segir Anna María að þýði ekki endilega að vandinn sé minni. Þegar ferðaþjónustufyrirtæki lærir að vinna með Meta og Google í stað íslenskra auglýsingastofa, þá notar það sömu verkfæri og sömu venjur þegar það auglýsir fyrir íslenska markaðinn líka.“ Það fé sem fer í Instagram-auglýsingu til erlendra ferðamanna fer ekki til íslensks kvikmyndagerðarfólks eða auglýsingastofa. Virðiskeðjan sem skapar störf og þekkingu hér heima fær ekkert af því.“Aðrar reglur gilda um alþjóðleg stórfyrirtækiÍslenskur auglýsingamarkaður finnur, að sögn Önnu Maríu, ótvírætt fyrir því að auglýsingakaup í innlendum miðlum hafi lækkað um fjórðung frá 2016.Auglýsingastofur hérlendis séu þó mjög færar og samkeppnishæfar. Vandinn er ekki hæfni heldur að við erum að keppa á ósléttu undirlagi þar sem alþjóðleg risafyrirtæki spila eftir öðrum reglum en við.“Hún bendir á að bæði Ástralía og Danmörk hafi gripið til þvingunaraðgerða til að fá Google og Meta, móðurfyrirtæki Facebook og Instagram, til að greiða innlendum fjölmiðlum sanngjarnan hlut. Að mati SÍA þurfi að taka alvarlega pólitíska umræðu um skattalegt jafnræði. Þegar 97 prósent kortaviðskipta í auglýsingum fara til tveggja erlendra fyrirtækja þá er það spurning sem stjórnmálamenn þurfa að taka á.“
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.