0
„Stóra sagan í þessu að okkur tókst að verja þessa hagsmuni“
April 22, 2026
Posted 1 hour ago by
Úttekt Ríkisendurskoðunar á undirbúningi og gerð varnargarða á Reykjanesskaga var birt í dag. Þar kemur meðal annars fram að verka- og ábyrgðarskipting var óskýr. Ríkislögreglustjóri hefði átt að leita sér óháðrar ráðgjafar.Miðað við það sem þarna kemur fram, geturðu tekið undir þessa gagnrýni á ríkislögreglustjóra?Ég myndi frekar segja að þarna var ríkisstofnun sem fékk gríðarlega stórt verkefni í fangið án nokkurs fyrirvara og við aðstæður sem að enginn hafði farið í gegnum áður, að reisa svona garða,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Mér finnst það vera stóra sagan í þessu, að okkur tókst að verja þessa hagsmuni.“Dómsmálaráðherra segir rétt að skoða hvernig staðið var að uppbyggingu varnargarða á Reykjanesskaga í ljósi aðstæðna á þeim tíma. Verkefnið var ríkislögreglustjóra ofviða samkvæmt nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar.Hún segir mikilvægast að draga lærdóm af skýrslunni um hvernig bregðast skuli við sams konar verkefnum í framtíðinni. Við vitum að varnargarðarnir þjónuðu tilgangi, þeir gerðu það sem þeir áttu að gera og síðan er það þá til framtíðar litið verkefnið að skoða það hvernig við myndum nálgast svona verkefni aftur.“Settur hefur verið á fót starfshópur um vernd mikilvægra innviða með tilliti til eldgosavár og frumvarp um breytingar á lögum um almannavarnir lagt fram á þingi. Ég hef mælt fyrir frumvarpi á Alþingi um ný almannavarnalög þar sem er verið að skilgreina hvað teljast ómissandi innviðir,“ segir Þorbjörg Sigríður.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.