Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum
0
World

Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum

April 16, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Áströlsk yfirvöld hyggjast hækka útgjöld til varnarmála upp í þrjú prósent af landsframleiðslu fyrir árið 2033. Fyrra markmið var 2,3 af hundraði.Ástralska stjórnin segir ástæðu hækkunarinnar tengjast stríðsátökum um allan heim auk þess sem Bandaríkjastjórn hefur þrýst á um hækkun útgjalda til varnarmála. Stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth krafðist þess í fyrra að Ástralir hækkuðu útgjöldin í 3,5 prósent.Ástralski varnarmálaráðherrann Richard Marles segir tekið að molna undan alþjóðlegum reglum sem áður hömluðu notkun valds og hernaðarmáttar.

Stjórnvöld ætla að hækka útgjöld til varnarmála talsvert á næstu árum

Ekki hafa fleiri lönd um veröld alla átt í stríði síðan seinni heimsstyrjöldinni lauk,“ segir Marles.Ástralir hafa styrkt eldflaugavarnir sínar undanfarin ár sem viðbragð við stækkun herskipaflota Kína. Auk þess hefur þjónustumiðstöð fyrir kjarnorkukafbáta verið í smíðum á grundvelli AUKUS-varnarsamstarfsins við Bretland og Bandaríkin.AUKUS er þríhliða öryggissamstarf Bandaríkjanna, Bretlands og Ástralíu sem miðar að því að bregðast við aukinni ásókn Kínverja í Indlandshafi og Kyrrahafi. Einnig hafa sjálfvirkir kafbátar og orrustuþotur verið í smíðum til að verja víðfeðma strandlengju landsins.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More