0
Stjarnan í undanúrslit eftir tvíframlengdan leik og Grindavík líka áfram
April 14, 2026
Posted 2 hours ago by
Grindavík tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Íslandsmóts karla eftir sigur á Njarðvík í fjórða leik liðanna í 8-liða úrslitum. Leiknum lauk með 91-84 sigri Grindavíkur sem vann einvígi liðanna því 3-1 en Njarðvík hafði unnið fyrsta leik liðanna áður en kom að þremur sigrum Grindavíkur í röð.Jordan Semple var stigahæstur Grindvíkinga í kvöld með 23 stig en Dwayne Lautier skoraði flest stig Njarðvíkinga eða 21 stig.Stjarnan vann eftir tvíframlengdan leikStjarnan vann svo KR í þrælskemmtilegum tvíframlendgum leik, 118-115.
KR var yfir lengst af en Stjarnan gafst aldrei upp og sá til þess að leikurinn var framlengdur. KR var aftur með frumkvæðið í framlengingunni en Stjarnan kom til baka og kom leiknum í aðra framlengingu. Í henni voru Stjörnumenn hins vegar sterkari og unnu þriggja stiga sigur og einvígið 3-1. Þar með er Stjarnan komin í undanúrslit.Hilmar Smári Henningsson var frábær í liði Stjörnunnar í kvöld með 35 stig og 10 fráköst.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.