Stelpurnar í neðsta styrkleikaflokki á EM
0
World

Stelpurnar í neðsta styrkleikaflokki á EM

April 13, 2026
RÚV
Scroll

Ljóst er að íslenska kvennalandsliðið í handbolta verður í neðsta styrkleikaflokki á EM 2026.Ísland tryggði sig inn á mótið með sigri gegn Portúgal í gær þar sem liðið var með einn besta árangurinn af liðum í þriðja sæti. Ísland var í þriðja styrkleikaflokki fyrir síðasta stórmót, HM 2025, og fellur því niður um einn styrkleikaflokk á milli móta.Dregið verður í riðla 16.

Stelpurnar í neðsta styrkleikaflokki á EM

apríl. Alls verða 24 lið dregin í sex riðla með fjórum liðum hver.Mótið fer fram 3. til 20. desember og er haldið í Póllandi, Rúmeníu, Tékklandi, Slóvakíu og Tyrklandi.Nú þegar liggur fyrir í hvaða riðli sex þjóðir verða.Ungverjaland verður í riðli A í Oradea (Rúmenía)Rúmenía verður í riðli B í Cluj-Napoca (Rúmenía)Tyrkland verður í riðli C í Antalya (Tyrkland)Tékkland verður í riðli D í Brno (Tékkland)Pólland verður riðli E í Katowice (Pólland)Slóvakía verður í riðli F í Bratislava (Slóvakía)Tvö efstu lið í hverjum undankeppnishópi fara í aðalkeppnina sem lögð er í Cluj-Napoca í Rúmeníu (lið úr hópum A, B og C) og í Katowice í Póllandi (lið úr hópum D, E og F).Lokahelgin fer fram á Spodek Arena í Katowice í Póllandi 18. (undanúrslit) og 20. desember 2026.Miðar á öll stig meistaramótsins eru þegar farnir í sölu. Nánari upplýsingar má finna á tickets.eurohandball.com.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More