Advertisement
Stefnan tekin á tunglið á ný
World

Stefnan tekin á tunglið á ný

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Bandaríska geimferðastofnunin NASA stefnir á mannaða ferð til tunglsins á morgun. Fari allt að óskum verður þetta í fyrsta sinn í yfir fimmtíu ár sem mannað geimfar fer til tunglsins.54 ár frá síðustu tunglferðSíðasta mannaða ferðin til tunglsins var árið 1972. Og nú, 54 árum síðar, fer annað teymi til tunglsins; Artemis annar, skipað geimförum NASA, þeim Reid Wiseman, Victor Glover og Christinu Koch, auk Jeremy Hansen frá kanadísku geimferðastofnuninni [Canadian Space Agency].Hægt verður að fylgjast með öllu ferlinu, meðal annars á YouTube-síðu NASA.Geimfarinu Orion verður skotið á loft frá Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída.

Stefnan tekin á tunglið á ný

Það fer umhverfis tunglið og heldur svo heim á ný.Geimfararnir fá því ekki þann heiður að bætast í hinn fámenna hóp sem gengið hefur á tunglinu.Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, stefnir á að senda mannaða geimflaug til tunglsins á morgun, í fyrsta sinn í rúma hálfa öld.Fyrstu mennirnir til að stíga á tungliðNeil Armstrong var fyrsti maðurinn til að stíga fæti á tunglið, þann 20. júlí 1969. Félagi hans Buzz Aldrin fylgdi á eftir og saman reistu þeir fyrsta þjóðfánann á tunglinu, en þriðji maðurinn, Michael Collins, flaug á braut umhverfis mánann.Talið er að hálfur milljarður hafi fylgst með atburðinum, sem var sýndur í beinni útsendingu um allan heim, þó ekki á Íslandi, þar sem að á þessum tíma var Ríkissjónvarpið alltaf í sumarfríi allan júlímánuð.Hjálmar Sveinsson verkfræðingur og Páll Theódórsson eðlisfræðingur lýstu tungllendingunni í útvarpinu.Vísir birti forsíðugrein um lendinguna daginn eftir, 21. júlí.Alþýðublaðið vísaði í orð Neils Armstrong sem hann lét falla eftir að hann steig fæti á tunglið, fyrstur manna.Flest dagblöðin greindu frá tungllendingunni tveimur dögum síðar, þar sem þau komu ekki út á mánudögum á þessum árum.Morgunblaðið birti útskrift af öllu því sem fór fram á milli geimfaranna og stjórnstöðvar NASA á meðan þeir voru á tunglinu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More