Stefna Björgólfi Thor og Birgi fyrir njósnir og einelti
World

Stefna Björgólfi Thor og Birgi fyrir njósnir og einelti

April 8, 2026
RÚV
Scroll

Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður og Ólafur Kristinsson lögmaður hafa stefnt Björgólfi Thor Björgólfssyni kaupsýslumanni og Birgi Má Ragnarssyni fjárfesti fyrir njósnir, brot gegn rétti til einkalífs, umsáturseinelti og brot á persónuvernd. Þeir krefjast miskabóta og segja friði sínum, öryggi og velferð hafa verið raskað.Tvímenningunum er stefnt fyrir héraðsdóm Reykjavíkur 28.

Stefna Björgólfi Thor og Birgi fyrir njósnir og einelti

maí. Málið er enn í rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi.Eftirlit í kjölfar málsóknarVilhjálmur og Ólafur eru meðal þeirra sem Björgólfur Thor lét eftirlitsfyrirtækið PPP, sem var í eigu fyrrverandi lögreglumannanna Jóns Óttars Ólafssonar og Guðmundar Hauks Gunnarssonar, fylgjast með árið 2012, samkvæmt umfjöllun Kveiks í apríl í fyrra.Þeir voru í forsvari félags fyrrverandi hluthafa Landsbankans sem stóð að hópmálsókn gegn Björgólfi 2011, en hluthafarnir sögðu Björgólf hafa blekkt sig og leynt upplýsingum með þeim afleiðingum að þeir töpuðu stórum fjárhæðum við fall bankans 2008.Í Kveiksþættinum kom fram að Björgólfur hefði talið þá vera handbendi Róberts Wessman, þeir tveir höfðu eldað grátt silfur og með njósnunum hefði Björgólfur viljað sanna að hann stæði á bak við málsóknina.Birgir Már var framkvæmdastjóri Novators, félags Björgólfs og í Kveik kom fram að hann hefði átt þátt í skipulagi aðgerðanna.Í gögnum Kveiks kom fram að persónuupplýsingum um hóp fólks var kerfisbundið safnað, setið um heimili og vinnustaði og földum myndavélum beitt. Setið var um heimili Vilhjálms, ferðir hans skráðar og reynt að hlera samtöl hans við fólk.Þá virtist vera farið inn í bílskúr Ólafs og fylgst með ferðum hans og eiginkonu hans.Ólögmætt, saknæmt og olli miskaVilhjálmur og Ólafur byggja stefnuna á því að þessi háttsemi hafi verið ólögmæt, saknæm og til þess fallin að valda þeim með grófum hætti verulegum miska á grundvelli skaðabótalaga. Þeir hafi ekki getað brugðist við með neinum hætti þar sem athæfið hafi farið fram með leynd og ekki vitað af henni fyrr en 29. apríl í fyrra þegar Kveikur fjallaði um það.Brotið hafi verið gegn rétti þeirra til friðhelgi einkalífs, gegn hátternisreglum almennra hegningarlaga og lögum um umsáturseinelti þar sem refsiverð er endurtekin og viðvarandi háttsemi sem felst í því að elta, fylgjast með eða sitja um annan mann, þegar háttsemin er til þess fallin að valda ótta eða verulegum óþægindum.Þá hafi aðgerðir PPP falið í sér ólögmæta vinnslu persónuupplýsinga sem brjóti gegn lögum um persónuvernd.Björgólfur sagður hafa átt frumkvæði og Birgir Már borið ábyrgðÍ stefnunni sem fréttastofa hefur undir höndum segir að aðgerðirnar hafi falið í sér óheimila öflun upplýsa um einkahagi stefnanda og/eða atriði sem stefnandi mátti vænta leyndar og friðhelgi um og áttu ekkert erindi við aðra en stefnanda sjálfan eða eftir atvikun þá sem stefnanda heimilaði. Aðgerðirnar voru framkvæmdar án lagaheimildar og voru alfarið utan þess ramma sem réttarríkið heimilar.”Í stefnunni segir að Björgólfur Thor hafi verið höfuðaðili að þeim aðgerðum sem hér um ræðir. Hann átti frumkvæði að verkefninu, skilgreindi markmið þess, tryggði fjármögnun, var meginnotandi þeirra upplýsinga og greininga sem aflað var og taldi sig bersýnilega eiga mestra hagsmuna að gæta í tengslum við verkefnið, enda var verkefnið framkvæmt í hans þágu.”Geti ekki firrt sig ábyrgðÍ stefnunni segir að Birgir hafi einnig borið ábyrgð á aðgerðunum og framkvæmd þeirra.Jafnvel þó að talið yrði að Birgir Már hafi ekki sjálfur átt beina hagsmuni af þeim aðgerðum sem stefnandi varð fyrir dregur það ekki úr skaðabótaábyrgð stefnda Birgis, heldur sýnir svo ekki verður um villst að þátttaka Birgis var fyrir hönd og í þágu stefnda Björgólfs, sem taldi sig eiga beina hagsmuni að aðgerðunum,” segir í stefnunni.Þeir Björgólfur Thor og Birgir geti ekki firrt sig ábyrgð á þeim grundvelli að þeir hafi falið öðrum, þ.e. PPP, framkvæmd verksins að mati Vilhjálms og Ólafs og vísað er í almennar reglur skaðabótaréttar um að sá sem taki ákvörðun um ólögmæta háttsemi og njóti ávinnings af henni beri ábyrgð á því tjóni sem hún valdi.Krefjast 66 milljóna af hvorum um sigVilhjálmur og Ólafur krefjast 66 milljóna króna hvor um sig af báðum þeim stefndu, samtals 264 milljóna, með dráttarvöxtum frá desember 2012, sem var samkvæmt gögnum Kveiks sá tími sem eftirlitinu lauk. Þá krefjast þeir einnig að Björgólfur og Birgir Már greiði allan málskostnað.Upphæð miskabótanna er tvöföld sú upphæð sem stefndu greiddu PPP fyrir að fylgjast með Vilhjálmi og Ólafi, samkvæmt umfjöllun Kveiks. Stefnendur segja eftirlitið hafa valdið sér verulegu ófjárhagslegu tjóni í formi miska. Hann felist í alvarlegri röskun á friði, persónulegu öryggi og velferð stefnanda, sem leiddi af því að vera, án vitundar sinnar, skotmark skipulagðra og leynilegra njósnaaðgerða og skráðs eftirlits.“Eftirlitið átti sér stað árið 2012 og skaðabótakröfur fyrnast almennt fjórum árum eftir að tjónþoli vissi af brotinu. Í stefnunni segir að hvorki Vilhjálmur né Ólafur hafi vitað af þessu fyrr en í apríl í fyrra.Segja ójafnvægi milli aðila málsÍ stefnunni segir að sérstaklega verði að líta til þess ójafnvægis sem sé á milli aðila málsins. Þeir stefndu séu með auðugustu Íslendingum og njóti fádæma fjárhagslegra og félagslegra yfirburða. Þegar slíkir aðilar beita yfirburðastöðu sinni til að standa að skipulögðum og leynilegum njósnaaðgerðum gegn einstaklingi verður brotið mun alvarlegra en ella,“ segir í stefnunni.Birgir Már er búsettur í Sviss og honum var afhent stefnan þegar hann kom hingað til lands til að sækja aðalfund fasteignafélagsins Heima 9. mars, en hann er varaformaður stjórnar félagsins. Björgólfur býr í London og var afhent stefnan þar fyrir skömmu.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More