0
Starmer: „Ég hefði ekki átt að skipa Mandelson“
April 20, 2026
Posted 3 hours ago by
Keir Starmer forsætisráðherra Bretlands segist bera ábyrgð á skipan Peters Mandelson sem sendiherra í Bandaríkjunum í fyrra. Hann sagði ákvörðunina hafa verið ranga og bað fórnarlömb Jeffrey Epstein afsökunar. Hann hefði aldrei skipað Mandelson í embættið hefði hann vitað að hann hefði ekki staðist öryggisvottun.Starmer rifjaði skipunina upp í yfirlýsingu í neðri málstofu breska þingsins í dag.
Þar gagnrýndi hann margítrekað að embættismenn í utanríkismálaskrifstofu Bretlands hefðu hvorki upplýst hann né aðra ráðherra eða hátt setta embættismenn um þetta. Hann sagði jafnframt, í ljósi fyrri tíðinda um að hann hefði gegn ráðleggingum embættismann skipað hann áður en öryggisvottunin lá fyrir, að þannig hefði þetta alltaf verið gert. Nú hefði þessu ferli verið breytt, þannig að ekki yrði gengið frá skipuninni fyrr en eftir að öryggisvottun lýkur.Ég sætti mig alls ekki við það að ekki hafi verið að láta æðsta embættismann ríkisstjórnarinnar vita eftir úttektina að vottunarnefndin mælti með því að Mandelson yrði synjað um öryggisvottun, sem var mikilvægur þáttur í öllu ferlinu. Það var hægt að láta hann vita, og það hefði átt að gera,“ sagði hann.Kemi Badenoch leiðtogi Íhaldsflokksins hélt því fram að Starmer hefði brotið siðareglur ráðherra með því að upplýsa ekki um að Mandelson hefði ekki staðist öryggisvottun strax á miðvikudag í fyrirspurnartíma forsætisráðherra, í ljósi þess að hann segist hafa fengið upplýsingarnar á þriðjudaginn var.Badenoch sagði jafnframt að Starmer væri að kenna öllum öðrum um en sjálfum sér. Forsætisráðherrann hefur hent starfsfólki sínu og embættismönnum undir rútuna. [...] Eins og hann sagði um fyrrverandi forsætisráðherra frá þessum stað: Ef hann afvegaleiddi þingið verður hann að segja af sér.“ Stendur hann við þessi orð eða er ein regla fyrir hann og önnur fyrir alla aðra?“ Aðrir stjórnarandstæðingar hafa tekið undir kröfu um afsögn.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.