Starfsmaður tengdur siðanefndarmálinu rekinn og síðan endurráðinn
0
World

Starfsmaður tengdur siðanefndarmálinu rekinn og síðan endurráðinn

April 23, 2026
Scroll

Posted 18 hours ago by

Haraldur Daði Ragnarsson hefur aftur hafið störf við Háskólann á Bifröst, nú sem kennsluráðgjafi á kennslusviði. Þetta staðfestir Ólína Þorvarðardóttir Kjerúlf, rektor skólans, við fréttastofu. Hann hafi hafið störf um síðustu mánaðamót.Haraldur Daði er rótgróinn starfsmaður við Háskólann á Bifröst og hefur mikið fram að færa, bæði sem kennari og sem starfsmaður á kennslusviði.

Starfsmaður tengdur siðanefndarmálinu rekinn og síðan endurráðinn

Hann hefur mikla reynslu og það er fyrst og fremst það sem ræður hans ráðningu,“ segir hún.Haraldur Daði starfaði við viðskiptadeild skólans frá 2014 og varð síðar fastráðinn. Frá árinu 2021 var hann lektor við skólann. Hann var, samkvæmt heimildum fréttastofu, rekinn frá Háskólanum á Bifröst seint á síðasta ári en hefur nú fengið ótímabundna ráðningu á ný.Siðanefndarmál og deilurMiklar deilur hafa skekið Háskólann á Bifröst undanfarna mánuði. Þær rötuðu í fjölmiðla eftir að Haraldur Daði og tveir aðrir kennarar við Háskólann á Bifröst voru sakaðir um að hafa gerst brotlegir við siðareglur skólans með akademískum skrifum sínum á síðasta ári.Var nefndin beðin um að skoða hvort þeir hefðu lagt nægilega mikið fram til vinnslu tveggja vísindagreina til að vera skráðir meðhöfundar þeirra. Niðurstaða hennar var sú að túlka yrði vafaatriði um gögn og málsatvik starfsmönnunum í hag.Hluti starfsfólks var óánægt með hvernig staðið var að málinu og Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst lýsti yfir vantrausti á hendur þremur stjórnendum vegna þess. Það voru Margrét Jónsdóttir Njarðvík, þáverandi rektor, Guðrún Johnsen, deildarforseti viðskiptafræðideildar, og Kasper Kristensen rannsóknarstjóri.Þáði verktakagreiðslur frá HAÁ svipuðum tíma og stjórnendur báðu siðanefnd að kanna störf kennaranna var einum þeirra sagt upp. Vísir greindi frá því í febrúar, án þess þó að nokkur væri nafngreindur, og sagði þar að ástæða uppsagnarinnar væri trúnaðarbrestur. Hann hafi tekið að sér kennslu við annan háskóla.Samkvæmt heimildum fréttastofu var sá kennari Haraldur Daði.Ekki náðist í Harald Daða við vinnslu fréttarinnar.Ólína vill ekki staðfesta að Haraldur hafi verið rekinn og vísar til þess að hún geti ekki tjáð sig um starfsmannamál einstakra starfsmanna. Hún vill heldur ekki svara því hvort endurráðning hans sé liður í sáttaferli innan skólans.Ég tjái mig ekki um það hverju það tengist. Ráðningin er málefnaleg, það var full ástæða fyrir að ráða hann inn og við erum þakklát fyrir það að njóta hans starfskrafta.“Samkvæmt Opnum reikningum fékk fyrirtæki Haralds Daða, Ráðgjöf og stjórnun slf., tæplega þrjár og hálfa milljón í verktakagreiðslur frá Háskólanum á Akureyri árið 2025. Á ferli hans á vef skólans stendur að hann hafi frá árinu 2021 sinnt stundakennslu þar.Árið 2014 var Haraldur fyrst ráðinn við Háskólann á Bifröst sem lausráðinn aðjúnkt. Í samningi milli hans og skólans um verkkaup fyrir skólaárið 2014-2015, sem fréttastofa hefur undir höndum, má sjá að tengiliður skólans var Sigurður Ragnarsson. Hann er bróðir Haralds.Sigurður var á þeim tíma sviðsstjóri viðskiptasviðs Háskólans á Bifröst. Hann varð síðar forseti viðskiptafræðideildar skólans áður en hann færði sig yfir til Háskólans á Akureyri þar sem hann er nú forseti viðskiptadeildar.Spurð út í ráðninguna segir Ólína að hún hafi ekki byrjað sem starfsmaður skólans fyrr en 2020 og sem stjórnandi 2022. Ég get ekki tjáð mig um eða haft skoðun á neinu sem átti sér stað í skólanum fyrir þann tíma og veit ekkert um þá sögu.“Fékk á annað hundrað milljóna frá Bifröst í verktakagreiðslurHaraldur Daði þáði háar fjárhæðir í verktakagreiðslur frá Háskólanum á Bifröst.Árin 2014–2024 fékk hann tæplega 126 milljónir, miðað við verðlag ársins 2026, í verktakagreiðslur í gegnum fyrirtæki sitt. Þá fékk fyrirtæki sem er í sameiginlegri eigu Haralds Daða og Ragnars Más Vilhjálmssonar, sem einnig var kærður til siðanefndar skólans, 40 milljónir á tímabilinu að núvirði.Hluta tímabilsins, að minnsta kosti frá 2021, voru kennararnir fastir starfsmenn í hlutastarfi við háskólann og fengu verktakalaunin greidd ofan á þau laun.Tekið var fyrir verktakagreiðslur til fastráðinna kennara við skólann í ársbyrjun 2025 á grundvelli þess að um gerviverktöku væri að ræða. Deilurnar í skólanum hafa meðal annars snúist um þessar verktakagreiðslur.Sáttaferli í gangi og einu vantrausti afléttAð sögn Ólínu hefur sáttaferli verið í gangi síðan Margrét Jónsdóttir Njarðvík, forveri hennar í starfi, hætti við skólann. Því sé ekki lokið en að það gangi vel. Unnið sé að vinnustaðarsáttmála við skólann. Það er það sem við erum að einbeita okkur að núna og tekst vonandi á næstu vikum.“Ólína segir að í vikunni hafi Félag akademískra starfsmanna samþykkt tillögu stjórnar félagsins um að aflétta vantrausti á rannsóknarstjóra skólans. Hann er sá eini af þeim þremur stjórnendum sem vantrausti var lýst yfir á sem enn er að störfum daglega. Margrét er hætt og Guðrún Johnsen, forseti viðskiptafræðideildar, er í veikindaleyfi.Þetta er mikilvægt skref í þessu sáttaferli sem er í gangi. Því er ekki alveg lokið en við erum á réttri leið. Það eru bara góðar fréttir eins og staðan er núna.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More