„Stærsta orkukreppa sögunnar“
0
World

„Stærsta orkukreppa sögunnar“

April 22, 2026
Scroll

Posted 3 hours ago by

Fatih Birol, framkvæmdastjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar, segir að heimsbyggðin standi nú frammi fyrir mestu orkukreppu í sögunni vegna stríðsins í Íran. Þetta sagði Birol á fundi um loftslagsmál sem var haldinn í Berlín.Birol segir slíkar kreppur hafi komið árin 1973, 1979 og svo 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Mun meira hefur tapast af olíu og gas í þessu stríði en í hinum þremur kreppunum samanlagt,“ sagði hann.

„Stærsta orkukreppa sögunnar“

Meðal þessu tapist ekki aðeins jarðefnaeldsneyti heldur líka áburður, helíum og brennisteinn.Endurnýjanlegir orkugjafar á uppleiðBirol segir hins vegar að brugðist verði með ákveðnum hætti nú auk þess sem tækni sé nú fyrir hendi til að framleiða orku á hagkvæmari hátt. Þá benti hann á að 75 þeirra orkuvera sem hófu starfsemi í heiminum í fyrra séu með endurnýjanlegum orkugjöfum. Nú er það hlutverk stjórnvalda að móta orkustefnu sína með tilliti til iðnaðarins, en á sama tíma viðhalda samkeppnishæfni atvinnugreina og undirbúa næstu skref fyrir atvinnugreinar framtíðarinnar. Og þetta er frábært tækifæri til þess.“Olía og gas hafa hækkað mikið í verði eftir að stríðið í Íran hófst vegna takmarkaðrar umferðar um Hormússund. Því lengur sem sú umferð er takmörkuð, því langvinnari verða áhrifin á efnahagslíf heimsins.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More