Advertisement
Sögulegri ferð í kringum tunglið lokið
World

Sögulegri ferð í kringum tunglið lokið

April 7, 2026
RÚV
Scroll

Áhöfnin í Artemis II leiðangrinum er á heimleið eftir sögulega ferð í kringum tunglið. Geimfararnir fóru lengra en nokkur manneskja hefur farið frá jörðu, sáu fjarhlið tunglsins og misstu allt samband við jörðu í um 40 mínútur. Áhöfnin sá einnig sólmyrkva.Skoruðu á þessa kynslóð og þá næstu að slá metið fljóttGeimfararnir Reid Wiseman, Christina Koch, Victor Glover and Jeremy Hansen fóru lengra út í geim en nokkur önnur mannvera, tæplega 407 þúsund kílómetra frá jörðu.

Sögulegri ferð í kringum tunglið lokið

Áhöfnin sló þar með met Apollo 13 þrettán leiðangursins sem hafði staðið síðan 1970.Rétt fyrir klukkan sex í gærkvöld að íslenskum tíma slógu geimfararnir metið.Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni.Kanadíski geimfarinn Jeremy Hansen, sem er fyrsti tunglfarinn fæddur utan Bandaríkjanna, sagði að við þessi merku tímamót væri áhöfnin að heiðra einstök afrek forvera sinna í geimferðum.Við höldum enn lengra út í geim áður en móður jörð tekst að tosa okkur til alls þess sem okkur þykir vænt um. En það sem mikilvægara er, við veljum þessa stund til að skora á þessa kynslóð og þá næstu að tryggja að þetta met verði ekki langlíft.“Það er að mörgu að huga í ferðalagi sem þessu og ýmis verkefni sem áhöfnin hafði. Þó að geimfarið hafi ekki lent á tunglinu voru geimfararnir að fara að sjá fjarhlið tunglsins með berum augum. Þar eru svæði sem engin manneskja hefur áður séð, aðeins ómönnuð geimför.Áður en það gerðist nýtti áhöfnin tækifærið og fékk að skíra tvo gíga á mörkum nær- og fjarhliðar tunglsins. Fyrri gíginn skírðu þau Integrity, eða Heilindi, en það er nafnið sem geimfararnir gáfu geimfarinu og nota í samskiptum sínum við stjórnstöð bandarísku geimferðastofnunarinnar, NASA, á jörðu niðri.Hinn gíginn skírðu þau eftir eiginkonu Reid Wiseman, leiðangursstjóra Artemis II, Carroll Weisman. Hún lést 2020 eftir baráttu við krabbamein. Þau áttu tvær dætur saman, þær Katie og Ellie.Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni.Hansen sagði þessa nafngift hafa mikla þýðingu fyrir áhöfnina sem byrjaði undirbúning fyrir þennan leiðangur fyrir mörgum árum. Síðustu ár hafi áhöfnin orðið náin fjölskylda. Við misstum ástvin.“Hansen sagði umhverfi gígsins mjög fallegt. Það sé á mörkum nær- og fjarhliðar tunglsins. Reyndar er hann á nærhlið þessara marka. Þannig að stundum þegar tunglið ferðast umhverfis jörðina er hægt að sjá þennan stað frá jörðinni.“Augnablikið var tilfinningaþrungið og Hansen komst við þegar hann tilkynnti stjórnstöðinni nafnið. Þetta er bjartur blettur á tunglinu og við viljum kalla hann Carroll.“Eftir stutta þögn staðfesti stjórnstöð NASA heitin og tilkynnti að þau yrðu borin undir Alþjóðasamtök stjarnfræðinga, IAU, sem hefur það hlutverk að nefna margvísleg fyrirbæri í geimnum. Áhöfnin féllst í faðma.Upplifðu sólmyrkvaStjórnstöð NASA náði sambandi við áhöfnina um miðnæturbil að íslenskum tíma eftir að það rofnaði í um það bil fjörutíu mínútur. Það var viðbúið að Orion-farið myndi missa samband þegar það var handan tunglsins. Stuttu eftir að geimfarið náði aftur sambandi við jörðu flaug það aðeins nokkur þúsund kílómetra frá yfirborði tunglsins. Við það upplifði áhöfnin sólmyrkva þar sem tunglið skyggði á ljósið frá sólu.Í þessu myndskeiði sést augnablikið þegar geimfarið nær aftur sambandi við jörðu og í kjölfarið lýsa geimfararnir sólmyrkvanum.Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni.Geimfararnir lýstu upplifuninni að fljúga kringum tunglið, fara á bak við það og missa allt samband við jörðu. Hansen segir áhöfnina hafa áttað sig á því að það væru tímamót þegar þau misstu sambandið.Við sáum jörðina hverfa. Jörðin settist, en við vorum svo upptekin við að sinna vísindunum og við höfum svo mikla trú á geimfarinu okkar Integrity og trú á stjórnstöðinni á jörðu niðri að við fundum frið. Við vorum bara að vinna vinnuna okkar og safna eins miklu af gögnum og við gátum meðan við vorum á fjarhlið tunglsins.“Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni.Reid leiðangursstjóri sagði Hansen hafa verið aðeins of auðmjúkan í sínum lýsingum.Um leið og við misstum samband við jörðu þá fengum við okkur smákökur. Við komum saman í um hálfa mínútu, hvert okkar með smáköku í hendi og síðan héldum við verkefnunum áfram. Við urðum að taka eitt augnablik til að virða þann tíma að fara á bak við tunglið og missa tengslin við jörðina. Það var mjög súrrealísk stund fyrir áhöfnina.“Fjarhliðin allt öðruvísiÁhöfnin svaraði ýmsum spurningum þegar fluginu í kringum tunglið var lokið og talaði meðal annars við Donald Trump Bandaríkjaforseta. Trump spurði geimfarana hvernig það hafi verið að sjá fjarhlið tunglsins og hvort hún væri öðruvísi en hliðin sem við sjáum frá jörðu niðri.Sögulegum Artemis-leiðangri í kringum tunglið er lokið. Geimfararnir í Orion-farinu fóru lengra út í geim en nokkur manneskja, misstu samband við jörðina í stuttan tíma og upplifðu sólmyrkva. Sjáðu helstu augnablikin úr ferðinni.Hansen sagði fjarhliðina allt öðruvísi en þá sem við þekkjum. Þyngdarafl jarðar hefur haft mikil áhrif á nærhlið tunglsins og breytt öllum þessum dökku blettum á tunglinu sem þú sérð frá jörðinni.“Hann sagði fjarhliðina mjög ólíka. Þó að þú sjáir nokkra litla bletti og djúpa gíga þá er það mjög sjaldgæft á þeirri hlið, það er mjög flott.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More