Skúrir víðast hvar og slydda seinnipartinn
April 9, 2026
RÚV
Útlit er fyrir tiltölulega hægan vind framan af degi en það bætir aðeins í vind þegar líður á daginn. Þurrt verður norðaustantil á landinu en annars staðar má fólk búast við því að regndropar falli á það, jafnvel nokkuð margir. Hiti verður þrjú til átta stig en það kólnar hægt með slydduéljum seinnipartinn. Í kvöld er útlit fyrir él.Veðurspáin er svohljóðandi:Sunnan 5-13 m/s og skúrir, en þurrt norðaustantil á landinu.
Snýst í suðvestan 8-15, fyrst suðvestantil. Hiti 3 til 8 stig. Kólnar hægt með slydduéljum seinnipartinn og éljum í kvöld,Breytileg átt 3-8 á morgun, en suðvestan 8-15 norðantil framan af degi. Stöku él eða slydduél, en styttir víða upp eftir hádegi. Hiti 1 til 6 stig að deginum
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.