Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp
March 31, 2026
RÚV
Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Skúli Tómas Gunnlaugssyni hjartalækni fyrir manndráp. Fimm mál sem voru til rannsóknar voru felld niður en gefin var út ákæra í einu þeirra. Þetta staðfestir Almar Möller, verjandi Skúla Tómasar, í samtali við fréttastofu.Skúli Tómas hefur verið til rannsóknar hjá lögreglu og héraðssaksóknara síðastliðin fimm ár, vegna gruns um að hafa sett sjúklinga sína á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í lífslokameðferðir, að tilefnislausu.
Hann var sviptur læknaleyfi sínu tímabundið en endurheimti það og hefur síðustu ár starfað á Landspítalanum. Tvö önnur sættu rannsókn, læknir og hjúkrunarfræðingur. Héraðssaksóknari felldi niður mál þeirra.Almar Möller segir í samtali við fréttastofu að ákvörðun héraðssaksóknara sé vonbrigði. Hann eigi erfitt með að skilja ákvörðun héraðssaksóknara um að ákæra Skúla Tómas en trúi því að málsmeðferð fyrir dómi muni sýna fram á að ekkert refsivert hafi átt sér stað.Skúli Tómas er ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Hann er til vara ákærður fyrir manndráp af gáleysi og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.