Advertisement
Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður?
World

Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður?

April 2, 2026
RÚV
Scroll

Í dag skoraði Fylkir á tveimur mismunandi völlum í einum og sama leiknum. Þetta hefur gerst að minnsta kosti einu sinni áður, þegar FHL skoraði á tveimur völlum gegn Hamri árið 2020.Leikur Fylkismanna gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta var stöðvaður vegna snjókomu. Hann hófst á Fylkisvelli í Árbæ en var færður í Skessuna, knatthús FH-inga í Hafnarfirði.Boltinn fór í net KFA manna á 2.

Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður?

mínútu í Árbænum þegar Milan Jelovac í liði austanmanna gerði sjálfsmark. Gunnar Oddur Hafliðason dómari leiksins flautaði leikinn af um stund á 24. mínútu.KFA menn vildu skiljanlega ekki ferðast aftur í bæinn fyrir frestaðan leik. Því færðu liðin sig um set í Skessuna og þar skoraði Guðmundur Tyrfingsson á 32. mínútu. Þannig lauk leiknum og Fylkismenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit.Mörkin tvö má sjá hér að neðan. Annað í snjó og hitt á þurru gervigrasi.Í dag gerðist það að Fylkir skoraði mark á tveimur mismunandi völlum í einum og sama fótboltaleiknum. Slíkt hefur að minnsta kosti gerst einu sinni áður. Leikur þeirra gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla var færður úr Árbæ í Hafnarfjörð.Hvað gerðist hjá Hamri og FHL?Í raun var uppi svipuð staða þegar þetta gerðist þá. Í þeim leik var einnig lið frá austan sem vildi klára leikinn og sleppa við ferðalag síðar.Árið 2020 þurfti að færa leik Hamars og Fjarðabyggðar/Hettis/Leiknis í 2. deild kvenna í fótbolta vegna rigningar. Gestirnir að austan leiddu 0-1 en Grýluvöllur í Hveragerði var á floti og því var leikurinn stöðvaður á 18. mínútu.Frétt Sunnlenska.is um leikinnLeikurinn var færður í Kórinn í Kópavogi og hófst tveimur klukkutímum síðar. Búningar leikmanna fóru í þurrkara og svo fór leikurinn aftur af stað.FHL bætti við þremur mörkum í Kórnum og skoraði því bæði í Hveragerði og Kópavogi í sama leiknum.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More