Skipuðu íbúum í Beirút að flýja heimili sín
April 9, 2026
RÚV
Ísraelsher skipaði íbúum í suðurhluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, að flýja heimili sín síðdegis þar sem frekari loftárásir væru yfirvofandi. Talsmaður Ísraelshers sagði á samfélagsmiðlinum X að herinn héldi áfram hernaðaraðgerðum og loftárásum á innviði Hezbollah-samtakanna í suðurhluta landsins. Yfir 200 voru drepin í loftárásum hersins í gær og rúmlega 1000 særðust, samkvæmt yfirvöldum í Líbanon.
Ísraelsher sagðist beina árásum sínum á staði samtakanna en AP sagði að nokkrar árásir í gær hefðu verið gerðar á þéttbýl íbúðarsvæði í höfuðborginni á annatíma, sem hefði leitt til mikils mannfalls hjá almennum borgurum. Ljósmynd af fjölskyldu liggur í rústum húss sem varð fyrir loftárás Ísraelshers í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag.AP / Hussein Malla
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.