Skipasmíðastöð í Turku nánast dælir út risafarþegaskipum
0
World

Skipasmíðastöð í Turku nánast dælir út risafarþegaskipum

April 20, 2026
Scroll

Posted 4 hours ago by

Risafarþegaskipið Legend of the Seas hóf reynslusiglingar í gær, sunnudag, sem geta tekið upp undir viku. Finnska Mayer-skipasmíðastöðin í borginni Turku á veg og vanda að smíði skipsins fyrir Royal Carribbean-skipafélagið. Það er í svokölluðum Icon-flokki. Legend of the Seas er 365 metra langt og tekur um 5.600 farþega.Það verður því næststærsta skemmtiferðaskip heims að sögn Önnu Hakala, samskiptastjóra skipasmíðastöðvarinnar, í samtali við YLE.

Skipasmíðastöð í Turku nánast dælir út risafarþegaskipum

Ætlunin er að Legend of the Seas hefji siglingar um Miðjarðarhafið í júlí og haldi loks til Karíbahafs þegar vetra tekur. Því er svo ætlað að snúa aftur til Evrópu sumarið 2027.Mayer hefur þegar afhent Royal Carribbean tvö farþegaskip í Icon-flokknum, Icon of the Seas var tilbúið 2023 og Star of the Seas í fyrrasumar. Tvö enn ónefnd Icon-skip, það fjórða og fimmta, eru í smíðum hjá Mayer sem nýlega samdi við Royal Carribbean um tvö til viðbótar fyrir árið 2036.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More