Advertisement
Skíði, tónlist og helgihald um páskana
World

Skíði, tónlist og helgihald um páskana

April 1, 2026
RÚV
Scroll

Mikið er um að vera víðsvegar um landið um páskahelgina. Margir eru á faraldsfæti, bæði innanlands og utan, enda ein stærsta ferðahelgi ársins framundan.Skítamórall og Bríet fyrir vestanVenju samkvæmt fer tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður fram á Ísafirði um helgina. Þetta er í 22. skiptið sem hún er haldin og munu Skítamórall, Friðrik Dór og Sykur meðal annars stíga á stokk.Þá er hafin Skíðavikan á Ísafirði.

Skíði, tónlist og helgihald um páskana

Þar verður meðal annars hægt að komast í skíðaskotfimi, gönguskíðaferð og fjallaskíðaferð. Opið verður á skíðasvæðum bæjarins alla dagana.Tónlistarkonan Bríet verður fyrir vestan um helgina. Hún mun spila á skírdag í Verbúðinni á Patreksfirði og halda miðnæturtónleika á Vagninum á Flateyri á föstudaginn langa.Sleðabrekkur fyrir norðanMikið er í boði á Akureyri þar sem páskadagskrá verður víða um bæinn. Opið verður á vinsælum skíðasvæðum í Hlíðarfjalli auk þess sem gönguskíðabrautir og sleðabrekkur verða opnar í Kjarnaskógi ef aðstæður leyfa. Hægt verður að heimsækja söfn bæjarins, stinga sér í sund og fara í reiðtúr.Í Fjallabyggð verður tónlistardagskrá á bæði Siglufirði og Ólafsfirði. Bæði verður opið á skíðasvæðinu í Skarðsdal og á Ólafsfirði. Á því fyrrnefnda verður lifandi tónlist um helgina ef veður leyfir.Hipsumhaps í BreiðdalsvíkFyrir austan verður haldið Páskafjör í Fjarðabyggð með viðburðum víða um sveitarfélagið. Hljómsveitin Hipsumhaps treður upp í Frystihúsinu á Breiðdalsvík á laugardagskvöld.Opið verður á skíðasvæðinu í Oddsskarði, milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, alla daga. Þar verða meðal annars flugeldasýning og plötusnúður á laugardagskvöldið. Þá verður haldin skíðamessa við skálann á páskadag og er skíðafólk hvatt til að mæta í sparifötunum.Á laugardag verður Náðarganga gengin frá Valþjófsstaðakirkju að Skriðuklaustri. Þar verður páskaeggjaleit haldin fyrir börn.Píslarsund í GróttuÁ höfuðborgarsvæðinu heldur Sund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur Píslarsund í Gróttu á föstudaginn langa. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum verður páskaeggjaleit 1.-6. apríl og opið verður á skíðasvæðinu í Bláfjöllum alla daga páskahátíðarinnar ef veður leyfir.Á Hvolsvelli verður haldið árlegt Bakgarðshlaup á föstudaginn langa. Grínistinn Pétur Jóhann treður upp á Laugarvatni á laugardagskvöld og Páskaball fer fram í Vestmannaeyjum. Þar koma fram Aron Can, Daniil og Ízleifur.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More