Sjáðu mörkin: Víkingur meistari meistaranna
March 29, 2026
RÚV
Þó enn sé snjór úti stoppar það fótboltafólk ekki í því að hefja nýja sparktíð. Allt var til fyrirmyndar í Víkinni í dag þrátt fyrir kulda, þegar Íslandsmeistarar síðasta árs í liði Víkings tóku á móti bikarmeisturunum í liði Vestra. Vestraliðið féll úr Bestu deildinni sl. haust og í ljósi þess þóttu Víkingar sigurstranglegri í dag. Það var ekki að ástæðulausu.
Nikolaj Hansen kom Víkingi einmitt yfir á 18. mínútu í 1-0 og áður en fyrri hálfleikur var á enda bætti hann öðru marki við.2-0 stóð í hálfleik og raunar allt þar til þrjár mínútur lifðu leiks en þá jók Valdimar Þór Ingimundarson muninn í 3-0. Það var svo komið fram í uppbótartíma þegar Óskar Borgþórsson rak síðasta naglann í kistu Vestramanna þegar hann innsiglaði 4-0 sigur Víkings. Sjáðu mörkin hér.Víkingur varð í dag meistari meistaranna í fótbolta karla eftir 4-0 sigur á Vestra. Meistarakeppni KSÍ markar upphaf fótboltatímabilsins á Íslandi þar sem eigast við Íslands- og bikarmeistarar síðasta keppnistímabils.Víkingur vann því Meistarakeppnina þetta árið en næsti leikur liðsins verður útileikur við Fram í 32-liða úrslitum bikarkeppninnar klukkan 17 á laugardag. Sá leikur verður einnig í beinni útsendingu RÚV. Keppni í Bestu deild karla hefst 10. apríl.Meistarakeppni kvenna verður svo 2. apríl þegar Breiðablik og FH mætast í beinni útsendingu á RÚV.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.