Sjáðu æfingar Thelmu í heimsbikarnum
April 7, 2026
RÚV
Thelma Aðalsteinsdóttir gerði vel þegar hún komst í úrslit í gólfæfingum á heimsbikarmóti í áhaldafimleikum í Karíó í Egyptalandi um helgina. Thelma endaði í sjötta af átta keppendum sem komust í úrslit og fékk einkunnina 12,300 en hin kínverska Ke Qinqin sem bar sigur úr býtum fékk 12,966 stig.Thelma hefur hlotið mikið lof fyrir gólfæfingar sínar, og myndskeið af henni leika listir sínar í úrslitunum hefur fengið mikla dreifingu á Instagram.
Sjá má gólfæfingar hennar hér fyrir neðan.Myndskeið með gólfæfingum Thelmu Aðalsteinsdóttur í úrslitum í heimsbikarmóti í Egyptalandi um helgina hafa farið eins og eldur í sinu um netheima. Thelma endaði í 6. sæti á þessu sterka móti.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.