Advertisement
Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku
World

Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku

March 31, 2026
RÚV
Scroll

Þrír erlendir ríkisborgarar voru handteknir fyrir þjófnað eftir hádegi í gær og hafa þegar verið sendir úr landi.Í tilkynningu frá lögreglu segir að þrír karlmenn á þrítugsaldri hafi verið handteknir eftir að tilkynnt var um þjófnað á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir voru fluttir á lögreglustöð og yfirheyrðir. Þeir játuðu að hafa stolið fatnaði. Þýfinu hefur verið komið aftur í hendur eigenda.Mennirnir voru hér á landi í nokkra daga áður en þeir voru handteknir.

Sendir úr landi innan við sólarhring eftir handtöku

Þeim var vísað úr landi á grundvelli útlendingalaga og þeir sendir úr landi um leið og sú ákvörðun lá fyrir.Lögregla vísar til ákvæða um að vísa megi útlendingum á brott allt að sjö sólarhringum eftir komuna til Íslands ef slíkt þykir nauðsynlegt vegna allsherjarreglu, almannaöryggis eða almannaheilbrigðis.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
Advertisement
You might also like

Explore More