0
Segir vinnubrögð borgarinnar hafa ýtt undir ótta
April 19, 2026
Posted 3 hours ago by
Reykjavíkurborg ýtti undir hræðslu við skjólstæðinga Kaffistofu Samhjálpar með vinnubrögðum sínum að mati framkvæmdastjóra samtakanna. Íbúi í nágrenninu segir galið að koma henni fyrir í miðju íbúðahverfi.Um sex vikur eru í að Kaffistofa Samhjálpar, taki til starfa við Grensásveg. Framkvæmdastjóri segir að vinnubrögð borgarinnar hafi alið á ótta, íbúi í nágrenninu segir starfsemina þarfa - en hún þurfi að vera á öðrum stað.Samhjálp leigði húsnæðið við Grensásveg 46 fyrir um hálfu ári, í húsinu eru líka kjötverslun, tannlæknastofa og íbúðir og fyrir aftan það eru raðhús.
Framkvæmdir hafa staðið yfir um skeið.Fjórum sinnum stærra en fyrra húsnæðiÞarna stendur til að afgreiða nokkur hundruð máltíðir á dag og þetta er fjórum sinnum stærra en fyrra húsnæði. Huti gestanna eru heimilislausir, aðrir hafa einfaldega ekki efni á að kaupa sér mat og þarna verður opið alla daga vikunnar, allt árið.Kaffistofan hefur verið á hrakhólum síðustu mánuði og er í tímabundnu húsnæði hjá Fíladelfíukirkjunni. Íbúar í hverfinu hafa bent á að nýja staðsetningin sé óheppileg, þeir kærðu samþykkt byggingarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og krefjast að framkvæmdir verði stöðvaðar.Niðurstöðunnar er að vænta í vikunni.Segja ítrekuð lögregluútköll í KaffistofunaÍbúar hafa gert athugasemdir við þessa staðsetningu þar sem þetta er inni í miðju íbúðahverfi,“ segir Íris Hrund Sigurðardóttir íbúi í hverfinuHún segir að ein ástæðan sé að íbúar í hverfinu hafi fengið upplýsingar frá lögreglu um fjölda útkalla í Kaffistofuna og ástæður þeirra.Þetta er mikill fjöldi útkalla, árið 2024 var 81 útkall að Kaffistofu Samhjálpar, að húsnæðinu sjálfu. Brotin eru stór og að setja þetta inn í mitt íbúðahverfi er bara algerlega galið.“Þannig að það er staðsetningin sem slík sem ykkur hugnast ekki? Já.“Langur afgreiðslutímiGuðrún Ágústa Guðmundsdóttir segir að ferlið við leyfisumsóknir og -veitingu vegna starfseminnar hafi tekið miklu lengri tíma en Samhjálp átti von á. Sá langi tími sem það tók borgina að afgreiða leyfin hafi orðið til þess að vekja ótta hjá fólki.Þessi dráttur á afgreiðslunni. Við sækjum um í október þetta byggingarleyfi. Það dregst í þó nokkuð langan tíma að afgreiða málið og senda til umsagnar sem er svo á endanum sent í grenndarkynningu. Það hefði þurft að gera það strax. Allur dráttur á afgreiðslu ýtir undir þennan ótta og gefur súrefni í ákveðna hræðslu. Það er mjög eðlilegt að fólk sé með ákveðnar áhyggjur.“Vilja vera í samskiptum við nágrannaAð draga það að taka afstöðu ... Er það vegna þess að þetta er svona erfitt eða hættulegt eða umdeilt? Það hefur ýtt undir ákveðna hræðslu,“ segir Guðrún Ágústa.Þannig að það hversu lengi borgin var að taka ákvörðun eða afstöðu - er með því verið að senda skilaboð um að þetta sé eitthvað varasamt? Þannig upplifi ég það, já. Þegar við opnum og förum að keyra þetta þá viljum við vera í virku sambandi við þá sem eru í nágrenni við okkur.“Hafa athugasemdir við staðsetninguna - ekki starfseminaÍris segir að athugasemdir íbúanna snúi ekki að starfseminni - heldur staðsetningunni. Kaffistofa Samhjálpar gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki fyrir þeirra skjólstæðinga. Og er mikilvæg starfsemi,“ segir Íris.Spurð hvort það væri ekki ákjósanlegt ef starfsemin væri í sátt og samlyndi við alla sem eru í nágrenninu svarar Guðrún Ágústa: Jú. Að sjálfsögðu.“Þetta þarf að vera í sátt og samlyndi við íbúana svo skjólstæðingunum líði vel,“ segir Íris.
RÚV
Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.