Segir unnið af fullum þunga í fangelsismálunum
0
World

Segir unnið af fullum þunga í fangelsismálunum

April 19, 2026
Scroll

Posted 2 hours ago by

Sífellt erfiðara er að tryggja öryggi fanga og starfsfólks í fangelsum því þau eru yfirfull. Í kvöldfréttum í gær kom fram að staðan hafi talsverð áhrif á störf lögreglu sem, í einhverjum tilfellum, veigri sér við að fara fram á gæsluvarðhald og ekki sé alltaf hægt að tryggja rannsóknarhagsmuni.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir stöðuna tilkomna vegna þess að fangelsin hafi verið vanrækt árum saman.

Segir unnið af fullum þunga í fangelsismálunum

Á sama tíma og það hefur verið kraftmikil fólksfjölgun í landinu. Stutta svarið er auðvitað bara að okkur vantar fleiri fangelsispláss og ég er í vinnu til að koma því til leiðar en það er langtímaverkefni og þess vegna þarf ég að horfa á skammtímaaðgerðir líka,“ segir hún.Fangelsisstofnun hafi fengið 230 milljónir aukalega í fyrra til að tryggja betra vinnuumhverfi fyrir fangaverði. Þá sé unnið að því að fjölga fangarýmum á Sogni. Þá séu tvö frumvörp að fara fyrir þingið sem eiga að létta á fangelsunum.Ég er með frumvörp inni á Alþingi sem að þjóna þeim tilgangi að létta á fangelsum. Brottfarsstöðin er umdeild og ég skil það. En það breytir ekki þeirri staðreynd að í fangelsum landsins situr hópur manna í gæsluvarðhaldi sem eiga að vera í öðru úrræði. Þegar við komum þessu úrræði á fót þá mun létta á fangelsunum,“ segir Þorbjörg.Hitt frumvarpið miðar að því að föngum, með lítil sem engin tengsl við landið, verði vísað úr landi - jafnvel áður en þeir hafa lokið afplánun. Þorbjörg segir að vandinn verði ekki leystur samstundis.Það er ekkert sem getur gerst alveg strax á morgun, við erum með nokkrar aðgerðir í gangi og það er verið að vinna að þessum aðgerðum af fullum þunga,“ segir Þorbjörg.

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left

People's Voices (0)

Leave a comment
0/500
Note: Comments are moderated. Please keep it civil. Max 3 comments per day.
You might also like

Explore More