Segir stöðuna alvarlega og kallar eftir samtali um nýja þjóðarsátt
World

Segir stöðuna alvarlega og kallar eftir samtali um nýja þjóðarsátt

March 30, 2026
RÚV
Scroll

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stöðu efnahagskerfisins vera orðna alvarlega, fullt tilefni sé til þess að skapa breytt samtal og koma á nýrri þjóðarsátt.Ég held að það sé kominn tími til þess að við setjumst niður dálítið alvarlega og veltum upp leiðum til þess að við getum sagt náð fram öllum helstu kostum þess sem gert var í þjóðarsáttinni.“Bjarni vísar þar í gömlu þjóðarsáttina sem gerð var árið 1990 um breyttar áherslur í kjarasamningum til að ná niður verðbólgunni, staðan í dag kalli líkt og þá eftir breyttu samtali.Á einhverjum tímapunkti þarf bara að hamra á bremsuna, sko, og segja: Heyrðu, nú verðum við öll að taka höndum saman.“Bergsteinn Sigurðsson ræddi við Bjarna í Silfrinu í kvöld.Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stöðu efnahagsmála vera orðna alvarlega og vísar í gömlu þjóðarsáttina; fullt tilefni sé til að skapa breytt samtal í efnahagsmálum og koma á nýrri þjóðarsátt.Ríkið verði líka að skila sínuAð sögn Bjarna geta fyrirtæki lagt sitt af mörkum í baráttunni við verðbólguna með því að fara í markvissar aðgerðir á kostnaðarhlið sinni, ábyrgðin liggi þó einnig hjá ríkinu sem verði að skila sínum hlut líka.Það verður að lofa því að elta ekki verðbólguna með öllum gjaldskrárhækkunum, nota skattkerfið til þess að hlífa þeim sem á þurfa að halda og halda ekki áfram að auka álögur á fyrirtæki en á sama tíma ætlast til þess að þau haldi aftur af sér.“Í þjóðarsáttinni sem gerð var fyrir 36 árum voru kjarasamningar milli verkalýðshreyfingar, atvinnurekenda og ríkisins undirritaðir.

Segir stöðuna alvarlega og kallar eftir samtali um nýja þjóðarsátt

Þar var samið um aðgerðir sem líklegar væru til þess að slá niður verðbólguna.Verði farið í svipaðar aðgerðir í dag segir Bjarni að traust þurfi að vera til staðar um að fyrirtæki velti ekki út í verðlagi á þeim takmörkuðu launahækkunum sem svigrúm sé fyrir og þegar hafi verið samið um.Það þarf að fá ríkið með í þetta og af hálfu vinnumarkaðarins þá þurfa menn auðvitað að trúa því að þetta geti gengið eftir og það þarf að vera samstaða um að ganga svolítið langt í því að að ná vöxtum niður.“

RÚV
RÚV

Coverage and analysis from Iceland. All insights are generated by our AI narrative analysis engine.

Iceland
Bias: lean left
You might also like

Explore More